- What: New Icelandic software solution for craftsmen and industry workers
- Impact: Business tool for time tracking and invoicing
Ný íslensk lausn hefur litið dagsins ljós sem ber heitið Unnur Verkbókhald og ætluð er verktökum og iðnaðarmönnum. Stofnendur lausnarinnar eru Júlíus Þór Björnsson Waage og Friðrik Snær Björnsson. Hugmyndin kviknaði þegar Júlíus vann við reikningagerð fyrir pípulagningarfyrirtæki og upplifði hversu flókið og tímafrekt ferlið gat verið. „Við vildum einfaldlega hætta að eyða mörgum klukkutímum í reikninga í hverjum mánuði. Þetta voru oft 20–30 klukkustundir í hverjum mánuði sem fóru bara í utanumhald.“ Sjá einnig Drift EA velur sjö fyrirtæki sem fá stuðning Júlíus segir að Unnur bjóði upp á smáforrit þar sem hægt er að skrá tíma, akstur, efni og myndir beint á verk og senda reikninga á örfáum mínútum. Stjórnendur geta sömuleiðis nýtt sér vefviðmót með yfirsýn og mælaborði. Strákarnir segja að viðtökur hafi þegar farið fram úr væntingum en fjöldi fyrirtækja, flest á Akureyri og nágrenni, noti þegar kerfið. „Ef við ættum að lýsa þessu á einfaldan hátt, þá viljum við verða besti vinur iðnaðarmannsins.“