- What: Icelandic game studio Solid Clouds receives a rescue funding offer
- Impact: Affects the financial stability of the game development company
Íslenska tölvuleikjafyrirætkið Solid Clouds hefur móttekið viljayfirlýsingu frá stærsta hluthafanum, félaginu 1961 ehf. sem er í eigu Eggerts Árna Gíslasonar, um 400 milljóna króna björgunarfjármögnun. „Lausafjárstaða félagsins er þröng. Ef fjármögnun næst ekki er hætta á að félagið geti ekki staðið við skuldbindingar sínar og að stjórn verði skylt að óska eftir gjaldþrotaskiptum,“ segir í tilkynningu Solid Clouds til Kauphallarinnar. 1961 ehf., sem er skráð í 100% eigu Eggerts Árna í fyrirtækjaskrá Skattsins, á 18,5% hlut í Solid Clouds. Í tilkynningu Solid Clouds segir hins vegar að Eggert Árni, sem er stjórnarformaður tölvuleikjaframleiðandans, sé annar tveggja eigenda 1961 ehf. Davíð Gunnarsson, varaformaður stjórnar mun leiða viðræður við 1961 ehf. Viðræður við aðra fjárfesta báru ekki árangur Viljayfirlýsingin frá 1961 um björgunarfjármögnun felur í sér „neyðarlán” að fjárhæð 30 milljónir króna til að tryggja áframhaldandi rekstur og launagreiðslur til skamms tíma. Um er að ræða heildarfjármögnun að fjárhæð allt að 400 milljónir króna í formi breytanlegra skuldabréfa í þremur áföngum. Viljayfirlýsingin er háð ákveðnum skilyrðum, þar á meðal að hluthafar samþykki lækkun hlutafjár um 80%. Jafnframt þurfa hluthafar að samþykkja útgáfu breytanlegra skuldabréfa. Eignir Solid Clouds námu tæplega 1,5 milljörðum króna í lok júní síðastliðins og eigið fé var um 1,4 milljarðar, samkvæmt síðasta árshlutauppgjöri . Handbært fé félagsins nam 170 milljónum króna í lok júní 2025. Stjórn Solid Clouds segir að viðræður við þá fjárfesta sem upphaflega var rætt við um mögulega fjármögnun með útgáfu breytanlegra skuldabréfa, sem tilkynnt var um í síðustu viku, hafi ekki skilað árangri. Sjá einnig Solid Clouds hefur viðræður við fjárfesta Samhliða tilkynningu sem Solid Clouds birti 4. mars sl. birti félagið uppfærða kynningu á stöðu félagisns. Þar kom fram að veruleg aukning hefði verið í virkni spilara í kjölfar nýjustu uppfærslu leiksins Starborne Frontiers auk þess að arðsemi markaðsstarfs félagsins (e. Return on Ad Spend) hafi farið vaxandi. Félagið sagði í umræddri tilkynningu að stefnt væri að því að ljúka þeirri fjármögnun á fyrri hluta næsta ársfjórðungs en einnig væri unnið að því að tryggja lausafjárfjármögnun fram að því. Solid Clouds sendi frá sér tilkynningu í desember þar sem félagið sagðist vinna að því endurræsa markaðsstarf vegna leiksins Starborne Frontiers, eftir að tæknilegir örðugleikar og tafir á fjármögnun ollu því að draga þurfti verulega úr markaðssetningu síðasta vor og sumar. Það hafi eðli máls samkvæmt hægt verulega á tekjuvexti. Sjá einnig Solid Clouds endurræsir markaðsstarfið Þann 13. febrúar sagði félagið í tilkynningu að markaðsstarf félagsins væri farið að skila raunverulegum árangri á ný. Jafnframt sagði félagið að hagræðingaraðgerðir hefðu leitt til þess að fastur kostnaður hafi lækkað um nær 50% frá upphafi síðasta árs. Nú styttist í að tekjur standi undir föstum kostnaði þess.