SpaceX, geimfyrirtæki auðkýfingsins Elon Musk, horfir til þess að fyrirtækið verði metið á meira en tvær billjónir (e. trillions) dala í væntanlegu frumútboði félagsins. Þetta kemur fram í frétt Bloomberg þar sem vitnað er í heimildarmenn sem þekkja til málsins. Fyrr í vikunni lagði SpaceX fram trúnaðarskjöl til bandaríska verðbréfaeftirlitsins þar sem miðað er við að frumútboð gæti farið fram í júní. Þetta gæti orðið stærsta frumútboð allra tíma en í frétt Bloomberg kemur fram að horft sé til þess að safna 75 milljörðum dala í útboðinu. Til samanburðar var stærsta frumútboð allra tíma þegar Saudi Aramco sótti 29 milljarða dala árið 2019. Þá gætu fleiri risavaxin stórútboð fylgt í kjölfarið, til dæmis hjá OpenAI og Anthropic. Miðað við tveggja billjóna dala verðmat hefur virði fyrirtækisins aukist um tvo þriðju á nokkrum mánuðum en við kaup SpaceX á xAI, sem einnig var í eigu Musk, var sameinað fyrirtæki metið á 1,25 billjónir dala, samkvæmt frétt Bloomberg frá því í febrúar síðastliðnum. Þá yrði SpaceX sjötta verðmætasta fyrirtækið í S&P 500 vísitölunni, á eftir Nvidia, Apple, Alphabet, Microsoft og Amazon. Fyrirtækið væri þá stærra en Meta og Tesla, en umrædd fyrirtæki eru hluti af svokölluðum „Magnificent 7“ hóp. Stórhuga áform Musks kalla á fordæmalaust magn fjármagns og auðlinda sem spannar mörg fyrirtæki. Musk sagði til dæmis í mars að Terafab-verkefnið hans, sem á að framleiða eigin örflögur fyrir vélmenni, gervigreind og gagnaver í geimnum, verði rekið í sameiningu af Tesla og SpaceX.