Skófyrirtækið Allbirds, sem eitt sinn var metið á um 4 milljarða dala eða sem nemur um 498 milljörðum króna, hefur nú samið um að selja eignir og megnið af starfsemi sinni fyrir 39 milljónir dala, eða um 4,9 milljarða króna. Í frétt Wall Street Journal um söluna segir að fyrirtækið hafi notið mikilla vinsælda meðal tæknifólks í Silicon Valley, fjölskyldufólks og fyrrverandi forseta Bandaríkjanna, Barack Obama, fyrir vistvæna ullarskó sína. Það hafi hins vegar átt undir högg að sækja um árabil. Samningurinn felur í sér sölu á hugverkaréttindum, eignum og skuldum til American Exchange Group, sem á meðal annars vörumerkin Ed Hardy og Aerosoles. Söluverðið nemur aðeins um einum áttunda af þeim 301 milljón dala sem fyrirtækið aflaði í hlutafjárútboði árið 2021. Allbirds var stofnað árið 2016 af Joey Zwillinger, iðnaðarverkfræðingi, og Tim Brown, fyrrverandi atvinnumanni í knattspyrnu. Hugmyndafræði félagsins byggði á því að fyrirtæki gætu sameinað hagnað, nýsköpun og samfélagslega ábyrgð. Stofnendur töldu að neytendur þyrftu ekki að hætta að kaupa vörur til að vernda umhverfið, heldur að vörurnar þyrftu einfaldlega að vera framleiddar á annan hátt. Fyrirtækið reiddi sig á hraðan vöxt og seldi vörur beint til neytenda. Vonir fyrirtækisins um að neytendur væru tilbúnir að greiða hærra verð fyrir sjálfbærar vörur rættust ekki og því fór sem fór. Eftir mikla velgengni í fyrstu reyndi fyrirtækið að viðhalda vexti með nýjum vörum. Margar þeirra mislukkuðust, þar á meðal íþróttafatnaður úr ull. Ullarleggings sem miklar vonir voru bundnar við reyndust gegnsæjar og þegar vandinn uppgötvaðist hafði fyrirtækið þegar pantað tugþúsundir eintaka sem reyndust óseljanleg. Varan var tekin af markaði ári síðar. Til að ná til yngri viðskiptavina reyndi Allbirds að auka úrval sitt með nýrri vörulínu af hlaupaskóm, auk þess að hefja sölu á nærfatnaði, úlpum og golfskóm. Umrædd vöruþróun var aftur á móti mislukkuð og nutu vörurnar ekki nærri sömu vinsælda og fyrstu vörur fyrirtækisins sem komu á markað. Hlutabréf Allbirds hafa lækkað um 95% frá skráningu félagsins á markað árið 2021.