Hlutabréfaverð íþróttavöruframleiðandans Nike hefur lækkað um 14% í viðskiptum dagsins eftir að félagið birti árshlutauppgjör í gær. Gengi Nike stendur í 45,26 dölum þegar fréttin er skrifuð og hefur ekki verið lægra frá árinu 2015. Bandaríska fyrirtækið varaði við því á fjárfestafundi að það geri ráð fyrir tekjusamdrætti út þetta almanaksár og að sala í Kína muni dragast saman um 20% á yfirstandandi ársfjórðungi. Félagið gerir ráð fyrir að sala á yfirstandandi fjórðungi muni dragast saman um 2-4%, en til samanburðar höfðu greiningaraðilar spáð 1,9% tekjuvexti. Eftir að félagið greindi frá horfum fyrir árið lét forstjórinn Elliott Hill gremju sína í ljós á starfsmannafundi í gær. „Ég er svo þreyttur - og ég veit að þið eruð það líka - á því að tala um að laga reksturinn,“ sagði Hill, samkvæmt upptöku sem Bloomberg hefur í höndunum. Hann sagðist vilja koma félaginu aftur í góðan vöxt og hafa gaman á ný. „Maður getur ekki bara setið hérna og sagt að allt sé frábært,“ sagði Hill og vísaði þar til fjárfestafundar þar sem félagið greindi frá horfum ársins. „Satt að segja þurfti þetta að vera öðruvísi.“ Þegar Hill tók við sem forstjóri Nike í október 2024 vann hann að því að leggja aukna áherslu á íþróttir og að byggja upp sambönd fyrirtækisins við heildsöluaðila á ný. Í frétt Bloomberg er bent á að gengi hlutabréfa félagsins hefur lækkað um meira en 35% frá því að hann tók við. Hill sagði að hluti af aðgerðunum sem hann réðst í hafi „tekið lengri tíma, mun lengri tíma en ég hefði viljað“. Rekstrarniðurstöður fyrirtækisins hafi verið tvískiptar, en sala á markaðssvæðum eins og Norður-Ameríku og sala hlaupavörur hafa batnað, en ekki nóg til að sannfæra fjárfesta. Fjármálastjóri Nike, Matthew Friend, tjáði starfsfólki að það þurfi að fara varlega með fjármuni félagsins og eyða einungis peningum þar sem það sé rökrétt. Hann sagði fyrirtækið áfram horfa til kostnaðarhagræðis í rekstri. „Ég er meðvitaður um að það kann að skapa ákveðna spennu innanhúss, en ég vil að þið gerið ykkur grein fyrir því að ástæðan fyrir þeirri spennu er sú að reksturinn okkar er ekki að þróast í rétta átt.“ „Mér er illa við að tapa, og við eigum enn verk fyrir höndum á sumum sviðum,“ bætti Hill við.