Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Dæmdur fjár­svikari leitar til fjár­festa á ný eftir náðun

Read Full Article →

Tre­vor Milton, stofnandi bandaríska vöru­bíla­fram­leiðandans Nikola, virðist vera að undir­búa endur­komu sína í bandarísku við­skiptalífi rúmu ári eftir að hann hlaut náðun frá Donald Trump Bandaríkja­for­seta. Frá þessu greinir Wall Street Journal, sem segir Milton nú hafa tekið við sem for­stjóri SyberJet Aircraft, flug­véla­fram­leiðanda sem hann hyggst byggja upp með nýrri fjár­festingar­lotu og metnaðar­fullum áformum um þróun lítillar þotu sem á að nýta gervi­greind í flugstýringu. Milton var sak­felldur árið 2022 fyrir að hafa blekkt fjár­festa í Nikola með rang­færslum um þróun vetnisknúinna vöru­bíla og tækni félagsins. Hann hafði stofnað Nikola árið 2015 og byggt upp mikla eftir­væntingu í kringum félagið, sem fór á markað árið 2020 í gegnum SPAC-sam­runa. Á hátindi upp­sveiflunnar fór markaðsvirði félagsins um tíma fram úr virði Ford áður en það hafði af­hent einn einasta vöru­bíl. Nikola One © Aðsend mynd (AÐSEND) Síðar kom í ljós að ýmsar full­yrðingar um tækni félagsins stóðust ekki skoðun. Saksóknarar héldu því fram að Milton hefði ítrekað ýkt eða rang­fært getu vörunnar og tækninnar. Málið vakti gríðar­lega at­hygli, ekki síst eftir að skortsölu­fyrir­tækið Hinden­burg Research birti skýrslu þar sem Nikola var sakað um blekkingar. Milton lét af störfum hjá félaginu skömmu síðar. Þrátt fyrir að hafa átt yfir höfði sér fangelsis­dóm og háar endur­greiðslu­kröfur fékk Milton skil­yrðis­lausa náðun frá Trump í mars 2025. Wall Street Journal segir að með því hafi refsing hans í reynd verið felld niður. Sjálfur hefur Milton haldið því fram að hann hafi verið pólitískt skot­mark og neitað því að hafa framið svik. Blaðið rifjar jafn­framt upp að Milton og eigin­kona hans hafi lagt að minnsta kosti 3,2 milljónir dala til kosninga­baráttu Trumps árið 2024 og til stjórn­mála­hópa og ein­stak­linga í hans nánasta um­hverfi. Milton segir þó að fram­lögin hafi ekki tengst náðuninni. Nú virðist hann ætla að hefja nýjan kafla í at­vinnulífinu. Sam­kvæmt Wall Street Journal hefur Milton tekið yfir SyberJet Aircraft ásamt fjár­festa­hópi og fengið til liðs við sig fjölda fyrr­verandi starfs­manna Nikola. Fyrir­tækið vinnur að áformum um nýja litla einkaþotu sem sögð er eiga að sam­eina mikinn hraða og drægni við nýtt stýri­kerfi sem byggir á gervi­greind. Í gögnum fyrir fjár­festa, sem blaðið segist hafa séð, kemur fram að félagið hyggist sækja um einn milljarð dala í nýtt fjár­magn og að mark­miðið sé að þróa jafn­framt sjálf­virka herþotu fyrir varnar­markaðinn. Mörg lykil­at­riði verk­efnanna séu þó enn á hug­mynda­stigi og óvíst hversu hratt eða hvort þau komist á markað. Milton hefur sjálfur lýst því yfir að hann líti á reynslu sína sem styrk­leika fremur en veik­leika. Hann segist nú finna fyrir meiri stuðningi meðal áhrifa­fólks í við­skiptalífinu en áður og líti svo á að náðunin hafi opnað sér nýjar dyr.

Share this article