- What: The US Supreme Court ruled that President Trump's tariffs were illegal.
- Impact: The ruling creates uncertainty in international trade.
Innlent | mbl | 20.2.2026 | 20:00 Nýr kafli og óvissan enn mikil Sigurður Hannesson og Donald Trump. Samsett mynd mbl.is/Árni Sæberg/AFP Sigurður Hannesson, framkvæmdastjóri Samtaka Iðnaðarins, segir nýjan kafla vera að hefjast í tollasögu Trumps. Óvissan sé enn mikil. Hæstiréttur Bandaríkjanna úrskurðaði í dag að tollar Bandaríkjaforsetans væru ólögmætir. Í niðurstöðu dómsins segir að lög um efnahagsvald í neyðartilvikum heimili ekki forsetanum að leggja á tolla. Á blaðamannafundi fyrir skömmu lýsti Trump yfir vonbrigðum sínum með dóminn en boðaði jafnframt nýja tolla sem myndu byggja á öðrum grunni. Frétt af mbl.is Tollar Trumps dæmdir ólögmætir Nýr kafli að hefjast „Um nokkurt skeið hefur verið óvissa í alþjóðaviðskiptum sem hefur birst okkur í tollum og verndarráðstöfunum af ýmsum toga. Við höfum líka séð það í auknu spennustigi í samskiptum ríkja. Með þessari ákvörðun Hæstaréttar Bandaríkjanna, sem að felldi úr gildi stóran hluta af þeim tollum sem bandarísk stjórnvöld hafa lagt á, má segja að nýr kafli sé að hefjast í þessari sögu og óvissan er enn þá mikil,“ segir Sigurður í samtali við mbl.is. Frétt af mbl.is Trump fór mikinn í Hvíta húsinu Önnur útfærsla Hann segir hinn pólitíska vilja bandarískra stjórnvalda hafa verið skýran varðandi að vilja vernda framleiðslu og afla ríkissjóði tekna með tollum. „Það má búast við því að það verði þá bara önnur útfærsla á þeim tollum, eins og þegar virðist hafa komið í ljós,“ segir Sigurður og vísar þar til blaðamannafundar Trumps þar sem nýir tollar voru kynntir. Sigurður segir óvissuna hafa verið mikla fyrir íslensk fyrirtæki frá því að tollar Trumps tóku gildi og að augljóst sé að sú óvissa haldi áfram. Flæjustig sem mun taka langan tíma að greiða úr Þá veltir hann jafnframt því fyrir sér hvað úrskurður Hæstaréttar Bandaríkjanna muni nú þýða fyrir alla þá sem flutt hafa vörur til Bandaríkjanna og greitt tollana fyrir. „Ég sá ummæli Trumps þess efnis að hann varð fyrir vonbrigðum með það að dómurinn skyldi ekki taka á því. Ef ég skil þetta rétt þá voru nokkuð skýr skilaboð um það að öðrum dómstólum væri eftirlátið að skera úr um það hvernig ætti að fara með það hvort að aðilar eigi þá bara rétt á endurgreiðslu. En þetta er bara flækjustig og mun væntanlega taka langan tíma að fá það á hreint.“ Sex látnir í Líbanon eftir árásir Ísraela Hættir Spánverjinn í sumar? Nýr kafli og óvissan enn mikil Taka skot á skíðum Berjast um sóknarmann Fulham Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Andrew laus en enn til rannsóknar Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Húsleit lögreglu heldur áfram í Royal Lodge Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum Sex látnir í Líbanon eftir árásir Ísraela Hættir Spánverjinn í sumar? Nýr kafli og óvissan enn mikil Taka skot á skíðum Berjast um sóknarmann Fulham Myrkvinn Velferðarkerfi í kröppum dansi Fleira áhugavert Piparúða beitt gegn ungum dreng Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Það þarf að hugsa í fleiri lausnum Aðför að fiskveiðistjórnunarkerfinu Geislavirkni á Reykjanesskaga: Flókið mál Hrefna og Arnar kaupa Ólafsson Var vöruð við að binda bætur við launavísitölu Starfsmenn heilsugæslu smitaðir af berklum Ólafur Ragnar sagðist þekkja Andrew vel Mun ETS-kerfið setja Icelandair á hausinn? Lögreglan rannsakar atvikið við Smáralind Guðlaugu lokað að beiðni Veitna Sjö voru í bíl sem valt á Suðurlandi Hættir sem bæjarstjóri „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Þorsteinn Pétur sýknaður Samfylkingin ekki lengur stærst „Maður heldur að svona gerist ekki“ Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja Piparúða beitt gegn ungum dreng Sagði að skotið hefði verið á sig Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Það var bara allt á floti“ Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Beint: Framsókn kýs nýja forystu Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum 50 komnir með stöðu sakbornings og von á fleirum