Vörusala hjá Bioeffect jókst um 9% milli ára samkvæmt tilkynningu frá fyrirtækinu og var sala á árinu 2025 í takt við væntingar. Félagið segir að allir markaðir hafi náð markmiðum sínum en bætir við að tekjuvöxtur hafi verið mestur í Bandaríkjunum. Aðalfundur Bioeffect var jafnframt haldinn í höfuðstöðvum félagsins að Víkurhvarfi 7 þann 9. apríl síðastliðinn. Á aðalfundi var Ragnheiður Guðmundsdóttir kosin áfram sem stjórnarformaður ásamt Guðbjörgu Eddu Eggertsdóttur og Knúti Dúa Zimers. Ný í stjórn eru Kristín Björk Björgvinsdóttir og Nicklas Garemo. Heildartekjur samstæðunnar árið 2025 námu 2.267 milljónum króna samanborið við 2.155 milljónir króna árið 2024. EBITDA ársins 2025 var neikvæð um 27 milljónir samanborið við 59 milljónir árið 2024. Sjá einnig Liv í stjórn Styrkáss fyrir Sunnu Björg Tap ársins nam 146 milljónum króna samanborið við níu milljóna króna tap árið áður. Þar af eru afskriftir 86 milljónir og gengistap 51 milljón, en íslenska krónan styrktist verulega á árinu 2025 samanborið við fyrra ár. Á síðari hluta árs 2025 var gert samkomulag við TEG Commerce LLC (Quantifi) um að fjárfesta í félaginu með nýju hlutafé að fjárhæð 2,5 milljónir dala, greitt í tvennu lagi í lok árs 2025 og byrjun árs 2026. „Það er mikill styrkur fyrir félagið að fá Quantifi í hluthafahópinn þar sem sérþekking þess mun nýtast til frekari sóknar í Bandaríkjunum, með áherslu á Amazon og netsölu. Samhliða fjárfestingu þeirra kom Karim Abbas nýr inn í stjórn félagsins,“ segir í tilkynningu. Bioeffect átti engu að síður krefjandi ár að baki en þar má nefna synjun Rannís á endurgreiðslu rannsóknar- og þróunarkostnaðar og gjaldþrot verslunarkeðjunnar Saks Global sem einnig rekur Neiman Marcus og Bergdorf Goodman í Bandaríkjunum. Fyrirtækið hefur einnig höfðað mál fyrir Héraðsdómi Reykjavíkur gegn Rannís vegna synjunar á umsókn félagsins um framlengingu skattafrádráttar vegna rannsókna og þróunar.