19 af 27 félögum á aðalmarkaði hafa tekið ákvörðun um að greiða arð til hluthafa á þessu ári, sem gerir 70% skráðra félaga. Tvö félög, Hagar og Bera, eiga enn eftir að skila inn uppgjöri síðasta árs. Reikna má með að Hagar muni bætast í hóp arðgreiðslufélaga en meiri óvissa er með Beru. Bera greiddi ekki út arð í fyrra. Þannig hafa sex félög gefið það út að þau hyggist ekki greiða arð á þessu ári. Þar á meðal eru Sýn og Iceland Seafood. Flugfélagið Icelandair mun heldur ekki greiða arð til hluthafa, en félagið tapaði 1,2 milljörðum króna á síðasta ári. Líftæknifélögin Oculis og Alvotech og málmleitarfélagið Amaroq munu heldur ekki greiða arð á þessu ári. Félögin þrjú hafa verið í miklum vaxtarfasa, en samkvæmt könnun Viðskiptablaðsins meðal markaðsaðila, sem framkvæmd var í byrjun árs 2026, ríkir hvað mesta trúin gagnvart þessum þremur félögum á árinu. Nærri helmingur svarenda könnunarinnar spáði því að Oculis yrði það félag sem hækkaði mest á markaði á árinu 2026. Tæplega fjórðungur svarenda spáði því að Alvotech hækkaði mest allra félaga á markaði á árinu, en félagið var skráð á aðalmarkað Kauphallarinnar í apríl árið 2024 og varð þar með tvískráð á Íslandi og í Bandaríkjunum. Rúmlega 13% svarenda spáðu því síðan að Amaroq myndi hækka mest allra félaga á aðalmarkaði á árinu 2026. Nánar er fjallað um málið í Viðskiptablaðinu . Áskrifendur geta lesið fréttina í heild hér .