- What: A total solar eclipse will occur in Iceland in August
- Impact: Residents and visitors in Reykjavík and western Iceland may need to prepare for the event
Innlent | Morgunblaðið | 4.4.2026 | 7:12 Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Sérstök sólmyrkvagleraugu eru nauðsynleg þegar almyrkvi á sólu er annars vegar. AFP Setja bókamerki Líf Magneudóttir, borgarfulltrúi og oddviti Vinstri grænna, segir mikilvægt að ríki og sveitarfélög vinni saman að undirbúningi fyrir almyrkva á sólu sem verður sýnilegur á Íslandi í ágúst. Um sé að ræða stórviðburð sem geti haft veruleg áhrif, ekki síst á höfuðborgarsvæðinu og á vesturhluta landsins, þar sem búast megi við miklum fjölda ferðamanna. Borgarráð lagði fram bókun 26. mars þar sem bent er á að almyrkvinn geti haft töluverð áhrif á Reykjavíkurborg ásamt öðrum sveitarfélögum og að undirbúningur vegna hans heyri að hluta undir almannavarnir. Þar er lögð áhersla á að grípa þurfi tímanlega til aðgerða, meðal annars til að veita upplýsingar, beina fólki á rétta staði og fyrirbyggja hættu sem skapast gæti vegna mikils álags. Borgarráð skorar jafnframt á ríkisstjórn Íslands að veita fjármagn í verkefnið. Í samtali við Morgunblaðið segir Líf að bókunin segi í raun það sem segja þarf, en að ljóst sé að sveitarfélögin geti ekki borið ábyrgðina ein. „Við komum að sjálfsögðu til með að sinna okkar hlutverki en þetta er miklu stærra mál,“ segir hún. Felur í sér leiðbeiningarskyldu „Við vitum að þessi viðburður er að koma og því þurfum við að vera í stakk búin til að taka á móti stórum hópi fólks. Þar sem fólk safnast saman í miklum mæli geta skapast hættulegar aðstæður og því þarf að skoða þetta út frá almannavörnum, umferðarmálum og allri grunnþjónustu á svæðinu. Það þarf til dæmis að huga að því hvort salernisaðstaða sé nægileg og hvort þörf verði á matarvögnum og annarri þjónustu,“ segir Líf. Að hennar sögn felur undirbúningurinn einnig í sér leiðbeiningarskyldu gagnvart almenningi og ferðamönnum. „Þetta er eitthvað sem væri eðlilegt að vinna með ríkinu. Við þurfum að eiga þetta samtal sameiginlega. Það er sameiginleg ábyrgð okkar að enginn slasist og að ekki skapist aðstæður sem við ráðum ekki við. Við þurfum að vera við öllu búin.“ Spurð hvort einhver viðbrögð hafi borist frá ríkinu við bókun borgarráðs segir Líf svo ekki vera, að því er hún best viti. „Mér hefur að minnsta kosti ekki borist það til eyrna að ríkið hafi svarað þessu, en ég get ekki fullyrt meira um það.“ Hún segir markmiðið fyrst og fremst vera að tryggja öryggi og að upplifun fólks af þessum óvenjulega viðburði verði góð. „Við viljum axla ábyrgð og tryggja að allt fari vel fram, að allir séu óhultir og geti notið þess að upplifa þetta magnaða náttúrufyrirbæri. Tilgangurinn er að tryggja öryggi almennings og ferðamanna og vera við öllu búin.“ „Snýst um að vera undirbúin“ Líf segir ekki rétt að túlka tilvísun í almannavarnir sem svo að yfirvofandi sé neyðarástand í hefðbundnum skilningi, heldur fremur sem eðlilega varúðarráðstöfun. „Almannavarnir eru líka virkjaðar þegar við fáum rauða veðurviðvörun og grípa þarf til ákvarðana, til dæmis um að loka sundlaugum. Þetta snýst um að vera undirbúin og koma í veg fyrir hættuástand. Við vitum ekki hversu margir munu koma né hvert umfangið verður en það er einmitt ástæða þess að við þurfum að vera viðbúin. Þetta er kannski ekki dramatískt en allur er varinn góður.“ Almyrkvi verður á sólu yfir Íslandi miðvikudaginn 12. ágúst þegar tunglið hylur sólina að fullu á vestanverðu landinu. Þetta verður fyrsti almyrkvinn sem sést frá Íslandi síðan 1954 og því um afar sjaldgæfan atburð að ræða. Líf Magneudóttir Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Leigja út heimili á ríflega milljón Þjálfarinn varð vitlaus þegar Fanndís neitaði „Finndu einhvern að elska sem þú getur eldað með“ „Ég gef engan afslátt“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Hvassahraun auglýst til sölu Beint: Halda lengra út í geim en nokkru sinni fyrr Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Hátæknibrennsla gæti kostað 25-28 milljarða Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ Myndir: Selavaða í Skagafirði vekur lukku „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun Nýjast á mbl.is » Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Leigja út heimili á ríflega milljón Þjálfarinn varð vitlaus þegar Fanndís neitaði „Finndu einhvern að elska sem þú getur eldað með“ „Ég gef engan afslátt“ Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Eldsneytisbirgðir í 45 daga Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Mest lesið Í gær Í vikunni Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Hátæknibrennsla gæti kostað 25-28 milljarða Gæddu Njálu lífi í gegnum leik og söng Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ Myndir: Selavaða í Skagafirði vekur lukku „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Hópur ferðamanna setti allt í vasana Rukka fyrir vanskráningu á morgun