Innlent | Morgunblaðið | 4.4.2026 | 10:52 Færri nafnspjöld og stafræn frumvörp Þorgerður Katrín vinnur að því að hætta prentun frumvarpa. Morgunblaðið/Eyþór Andrea Sigurðardóttir [email protected] Setja bókamerki Ekki liggur fyrir hver áhrif hagræðingartillagna starfshóps forsætisráðherra til ríkisstjórnarinnar voru á starfsemi utanríkisráðuneytisins á síðasta ári þar sem þær voru ekki samþættar inn í fjárlög þess árs. Þetta kemur fram í svari Þorgerðar Katrínar Gunnarsdóttur utanríkisráðherra við fyrirspurn Árna Helgasonar varaþingmanns Sjálfstæðisflokksins. „Varðandi áhrif tillagnanna á starfsemina á árinu 2025 er vert að benda á að það ár var starfsemi ríkisaðila í samræmi við þágildandi ársáætlanir á grundvelli fjárlaga þess árs. Fjárlög fyrir árið 2025 gerðu ráð fyrir almennri hagræðingu upp á 2,2 milljarða kr. innan ársins og 8,2 milljarða kr. sértækri hagræðingu fyrir ríkisaðila í heild. Þar sem tillögurnar voru ekki samþættar inn í fjárlög fyrir árið 2025 liggur ekki fyrir hvaða hagræðing hafi náðst vegna tillagnanna á árinu 2025,“ segir meðal annars í svari ráðherrans. Fram kemur að þrátt fyrir það hafi tillögurnar nýst til að koma ýmsum verkefnum af stað og því hafi ráðuneyti og stofnanir strax farið í vinnu við að innleiða mál í samræmi við tillögur hópsins. Fækkun áskrifta að tímaritum Á meðal hagræðingaraðgerða innan utanríkisráðuneytisins sem eru listaðar upp vegna ársins 2025 er endurskoðun og fækkun áskrifta að tímaritum sem áætlað er að hafi skilað 3,5 milljóna hagræðingu á síðasta ári. Aðgerðin er enn í vinnslu. Þá er áætlað að 3 milljónir króna sparist við að hætta greiðslu ferðakostnaðar fyrir önnur ráðuneyti og er þeirri aðgerð þegar lokið. Það má leiða að því líkur að sá sparnaður skili sér sem kostnaðarliður í öðrum ráðuneytum, að öðru óbreyttu. Stærsti hagræðingarliðurinn, áætlaður upp á 32,8 milljónir á síðasta ári, felst í þjónustu við útsenda fulltrúa annarra ráðuneyta og stofnana en ekki kemur fram hvort sú þjónusta verði aflögð, dregið úr henni eða hún færð út fyrir ráðuneytið. Aðgerðin er enn í vinnslu. Viðburðarstjórnun breytist Þrjár milljónir eru áætlaðar í hagræðingu árið 2025 vegna breytingar á fyrirkomulagi viðburðastjórnunar og fundaraðstöðu fyrir utanaðkomandi en sú aðgerð er ekki hafin. Milljón til viðbótar á að hafa sparast á síðasta ári með því að hætta að prenta frumvörp, skýrslur og þess háttar en sú aðgerð er hluti af tillögum starfshópsins. Aðgerðin er í vinnslu. Þá hefur ráðuneytið lokið þeirri aðgerð að draga úr tímamældri yfirvinnu og er áætlað að fyrir vikið hafi sparast 8 milljónir á síðasta ári. Loks er áætlað að 700 þúsund krónur hafi sparast með færri útgefnum nafnspjöldum. Bent er á að margt í tillögum hópsins hafi þegar verið komið til framkvæmdar. Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Færri nafnspjöld og stafræn frumvörp Man. City – Liverpool kl. 11.45, bein lýsing Naut þess ekki að spila með Messi Laufey verður á Coachella Valdatíð Orbans mögulega á enda Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eldsneytisbirgðir í 45 daga Fylgdust með flugtakinu frá Walmart-bílastæði Aprílgabb Moggans efni í þjóðfræðigrein Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Varað við hættulegum aðstæðum fyrir austan Gera áhættumat fyrir Ísland Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Færri nafnspjöld og stafræn frumvörp Man. City – Liverpool kl. 11.45, bein lýsing Naut þess ekki að spila með Messi Laufey verður á Coachella Valdatíð Orbans mögulega á enda Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Artemis-2 leiðangurinn er hafinn Hryðjuverkamálið komið á dagskrá Landsréttar á ný „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Hafa ekki náð jafn litlu landsvæði á víglínunni Mest lesið Í gær Í vikunni Leigja út heimili á ríflega milljón Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Íbúðir ekki heimilar í Naustinu Borgin kallar eftir aðkomu ríkisins Varað við hættulegum aðstæðum fyrir austan Gera áhættumat fyrir Ísland Fræðimannsíbúð laus til umsóknar Hefur unnið að Artemis-áætluninni í áratug Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Aftur í eigu fjölskyldunnar Öskurrifust í verslunarmiðstöð og löggan kölluð til Að í alla nótt: „Þetta er föstudagurinn laaaangi“ „Stórkostlegt að sjá þjóðina taka höndum saman“ Þremur afhendingarstöðvum áfengis lokað Óánægja með gjöf Smáríkisins Björn snýr sér að hlaðvarpsgerð Reyna ekki að hrifsa til sín olíu Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana