Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Ósjálfbært ríkisfyrirtæki leggur áherslu á sjálfbærni

Read Full Article →

Það fór vel á því að á sama tíma og Morgunblaðið sagði frá því á ­forsíðu sinni á mánudag að opinberum starfsmönnum hefði fjölgað um 1.250 manns á milli ára í febrúar, á meðan störfum í einkageiranum hefði fækkað um 910 milli ára, tilkynnti Pósturinn um ráðningu nýs sjálfbærnistjóra. Hrafnarnir lásu sem sagt um það að Þórhildur Ólöf Helga­dóttir forstjóri hafi fengið Maríu Kjartansdóttur til starfa frá Landsvirkjun til að sjá um sjálfbærnimálin. Auðvitað þarf ríkisfyrirtæki sem er í algjörlega ósjálfbærum rekstri sjálfbærnistjóra. Það blasir við öllum. Reksturinn er svo ósjálfbær að félagið hefur leitast eftir því við Byggðastofnun að fá enn meiri pening frá skattgreiðendum. Pósturinn var að vísu réttum megin við núllið í rekstrinum í fyrra en það var vegna eignasölu; tap var af reglulegri starfsemi og drógust tekjur saman um 9,4% milli ára og námu 6,9 milljörðum króna á árinu 2025, samanborið við rúmlega 7,6 milljarða árið áður. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill birtist fyrst í blaðinu sem kom út 21. apríl 2026.

Share this article