Innlent | Morgunblaðið | 5.4.2026 | 10:00 Vandasöm vinna undir brúnni Veitur ætla að tryggja að vaxandi samfélag fái nægilegt heitt og kalt vatn í framtíðinni. Því verður í sumar ráðist í að endurnýja og stækka allar lagnir undir Borgarfjarðarbrúnni. mbl.is/Sigurður Bogi Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Veitur, dótturfyrirtæki Orkuveitunnar, hefja nú í apríl vinnu undir Borgarfjarðarbrú þar sem endurnýja og stækka á lagnir fyrir kalt og heitt vatn fyrir vaxandi samfélag í Borgarnesi, eins og segir á heimasíðu Veitna. Framkvæmdin er samstarf Veitna, Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna Mílu og Ljósleiðarans. Áætlað er að verkinu ljúki í nóvember á þessu ári. Óhjákvæmilega mun þetta leiða til talsverðrar röskunar á bílaumferð um Borgarfjarðarbrúna. Lagnirnar, ásamt strengjum Rarik og fjarskiptafyrirtækjanna, liggja undir Borgarfjarðarbrúnni. Það verður flókið fyrir verktakann Borgarverk og starfsmenn að vinna við þessar aðstæður með beljandi sjóinn fyrir neðan. Ljósmynd/Veitur Aðstæður til framkvæmda undir brúnni eru því töluverð áskorun fyrir verktaka, þar er takmarkað athafnasvæði og áhættusamt að vinna. Borgarverk er verktaki og verkfræðistofan Hnit sinnir eftirliti með framkvæmdinni, þar á meðal sérstöku öryggiseftirliti. „Yfir vinnusvæðinu er Þjóðvegur 1 og brúin hreyfist með umferðinni. Undir lögnunum er straumharður sjórinn sem fylgir flóði og fjöru á þröngu svæðinu undir brúnni,“ segir á heimasíðunni. Þar segir enn fremur að öryggismál séu ávallt í forgangi hjá Veitum. „Öll sem starfa fyrir Veitur eiga að koma heil heim og kröfurnar eru því miklar á verktaka að vanda til verka, hafa áætlanir og viðbragð í lagi.“ Veitur leiða verkið og það hefur verið í undirbúningi um þó nokkurt skeið. Kaldavatnslögnin flytur neysluvatn fyrir Borgarnes frá vatnstökusvæðinu á Seleyri, en þar stendur endurnýjun á dælubúnaði og mannvirkjum yfir. Lengsta stofnæðin Heitavatnslögnin flytur vatn til húshitunar í Borgarnes og er tengd við Deildartunguæð sem er lengsta stofnæð hitaveitu sem þekkist á landinu. Deildartunguæð, betur þekkt sem HAB-lögnin, nær tæpa 70 kílómetra frá Deildartunguhver að Akranesi. Til að tryggja að Borgarnes sé tengt nauðsynlegum innviðum meðan á vinnu stendur þarf að leggja bráðabirgðalagnir fyrir byggðina og þeim verður einungis komið fyrir uppi á brúnni sjálfri. Á meðan Veitur setja bráðabirgðalagnir verður einstefna á þjóðvegi 1 yfir brúna með umferðarljósum og hraði minnkaður. Það er gert til að tryggja öryggi bæði vegfarenda og starfsfólks á brúnni. Sú vinna hefst í lok apríl og stendur fram í júní. Þegar lagnavinnu lýkur í október verða bráðabirgðalagnirnar fjarlægðar að nýju og meðan á því stendur verður umferð aftur takmörkuð. Þegar vinna hefst undir brúnni verður opnuð að nýju tvístefna á veginum en hraði takmarkaður. Það er gert til að minnka hreyfingar á brúnni til að þau sem vinna við lagnirnar geti athafnað sig af öryggi og tryggt góða lagnavinnu. Borgarnes tilheyrir Borgarbyggð og er stærsti þéttbýliskjarni sveitarfélagsins. Borgarbyggð var stofnuð 11. júní 1994. Í Borgarnesi búa nú um 2.000 manns og þar er blómlegt félags-, menningar- og atvinnulíf, eins og segir í samantekt á heimasíðu sveitarfélagsins. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Calm weather today ahead of tomorrow’s blizzard 11 leikja sigurganga á enda Vandasöm vinna undir brúnni Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg Gæti orðið „móralskur sigur“ fyrir Írana Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Mest lesið Í gær Í vikunni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Stal úr görðum og bílum Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Breytingin á jöklunum er svakaleg Fínasta veður í dag fyrir stórhríðina á morgun Gul viðvörun: Hvetja fólk til að fara fyrr af stað Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Gefist unga fólkið upp þá er engin framtíð Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana Nýjast á mbl.is » Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Calm weather today ahead of tomorrow’s blizzard 11 leikja sigurganga á enda Vandasöm vinna undir brúnni Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Umræðan Menn láta nýtt vín á nýja belgi Enn ein hótun Trumps Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Framtíð einu farþegaferju landsins æ óvissari Myndskeið: Þúsundir streyma í Hlíðarfjall Breytingin á jöklunum er svakaleg Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg Mest lesið Í gær Í vikunni Miðar á stórtónleika orðnir stöðutákn í dag Tveir fengu 88 milljónir Vill láta endurskoða leyfi til tónleikahalda Stal úr görðum og bílum Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Breytingin á jöklunum er svakaleg Fínasta veður í dag fyrir stórhríðina á morgun Gul viðvörun: Hvetja fólk til að fara fyrr af stað Ástandið verra á Fjarðarheiði en áður var talið Gefist unga fólkið upp þá er engin framtíð Leigja út heimili á ríflega milljón Heimir segir páskaeggjakaupin óheppileg Andlát: Steinar J. Lúðvíksson Peningunum betur varið í annað Tveir fengu 88 milljónir Gul veðurviðvörun gefin út fyrir landið allt Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Eina ráðuneytið sem gefur ekki páskaegg „Það má aldrei vera neitt gaman“ 88 ára getspekingur: „Þetta kom mér ekkert á óvart“ Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Niðurfelling kílómetragjalds fær Alvarlegt slys: Ekið á barn og fullorðinn Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Glæný vél varð eftir í Dublin eftir harða lendingu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Rukka fyrir vanskráningu á morgun Hópur ferðamanna setti allt í vasana