Skipuleggjendur tónlistarhátíðarinnar Wireless í Bretlandi eru undir auknum þrýstingi að afbóka tónlistarmanninn Kanye West. Breski forsætisráðherrann gagnrýndi hátíðina fyrir valið og stórir bakhjarlar hafa dregið stuðning sinn til baka. Stórir bakhjarlar draga stuðning til baka Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi hætti við að vera aðalbakhjarl bresku tónlistarhátíðarinnar Wireless sem fer fram í Lundúnum 10. til 12. júlí eftir að tilkynnt var um þátttöku tónlistarmannsins umdeilda Kanye West, sem gengur nú undir nafninu Ye. Búist er við um 50 þúsund tónleikagestum á hvert kvöld. Annar stór bakhjarl, áfengisframleiðandinn Diageo, hefur einnig hætt við að vera bakhjarl og í yfirlýsingu frá fyrirtækinu segir að stjórnendur hafi upplýst skipuleggjendur hátíðarinnar um áhyggjur sínar. Greiðslumiðlunin PayPal hefur bannað Wireless að nota vörumerki sitt í kynningarefni fyrir hátíðina. Ýmis ummæli og yfirlýsingar tónlistarmannsins hafa valdið miklu fjaðrafoki. Hann hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma. Í fyrra gaf hann út lag sem hét Heil Hitler og seldi boli með hakakrossinum á. Vilja banna West að koma til Bretlands Í janúar birti West heilsíðuauglýsingu í The Wall Street Journal sem bar titilinn „Til þeirra sem ég hef sært“ (e. To Those I've Hurt). Þar sagðist hann hvorki vera nasisti né gyðingahatari og sagðist elska gyðinga. Hann sagðist hafa farið í fjögurra mánaða langt geðrof þar sem hann glímdi við ofsóknaræði og hvatvísa hegðun sem hafi eyðilagt líf hans. „Ég missti tengslin við raunveruleikann. Ástandið versnaði eftir því sem ég hunsaði vandamálið lengur. Ég sagði og gerði hluti sem ég sé mikið eftir.“ Hann kenndi geðsjúkdómnum um hegðun sína og orðfæri sem og ótilgreindum heilaskemmdum sem hann sagðist hafa hlotið í bílslysi fyrir 25 árum. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, gagnrýndi tónleikahaldara fyrir að falast eftir þátttöku West þótt hann hafi beðist afsökunar á ummælum sínum. „Það veldur mér miklum áhyggjum að Kanye West hafi verið bókaður á Wireless þrátt fyrir ummæli hans sem tengjast andúð á gyðingum og hrifningu hans á nasisma. Gyðingahatur í hvers konar mynd er andstyggilegt og það verður á takast á við það skýrt og afdráttarlaust, hvar sem það birtist. Allir bera ábyrgð á því að tryggja að Bretland sé öruggur staður þar sem gyðingar geta fundið fyrir öryggi og trausti.“ Formenn ýmissa baráttuhópa gegn gyðingahatri hafa lýst yfir undrun á bókuninni. Stephen Silverman, sem er hjá Herferð gegn gyðingahatri, sagði bókunina furðulega. „Það er frábært að bakhjarlar séu núna að gera það rétta í stöðunni og draga úr stuðningi en hvernig gat það mögulega talist rétt að bjóða upp á listamann sem gaf út tónlistarmyndband við lag sem heitir Heil Hitler, fyrir minna en ári síðan?“ Einhverjir hafa gengið svo langt að krefjast þess að bresk stjórnvöld banni West að koma inn í landið. Íhaldsflokkurinn hvatti bresk stjórnvöld til þess að neita honum um landvistarleyfi. „Að leyfa einhverjum með hans bakgrunn að vera aðalatriði á stórum opinberum viðburði eins og þessari tónlistarhátíð sendir algjörlega röng skilaboð.“ Rachael Maskell, þingmaður Verkamannaflokksins, sagði að það ætti ekki að leyfa West að fá vettvang til að flytja tónlist sína. Hann ætti heldur ekki að fá að koma til landsins í ljósi ummæla sem hann hefði látið falla. West hefur ekki komið fram í Bretlandi síðan 2015 þegar hann var aðaltónlistarmaðurinn á Glastonbury-tónlistarhátíðinni.