- What: Kanye West banned from entering the UK
- Impact: Festival organizers canceled event
Bresk stjórnvöld hafa bannað tónlistarmanninum Kanye West að koma til landsins. West átti að koma fram á tónlistarhátíðinni Wireless í Lundúnum í júlí. Búið er að aflýsa tónlistarhátíðinni. West hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma. Wireless aflýst vegna ákvörðunar stjórnvalda Breska ríkisútvarpið, BBC, hefur eftir innanríkisráðuneyti landsins að West hafi sótt um ferðaleyfi til Bretlands í gær. Ráðherrar hafa vald til að banna erlendum ríkisborgurum að koma til Bretlands ef viðurvist þeirra er ekki talin vera til almannaheilla. Ákvörðunin hafi verið tekin á þeim forsendum. West, sem gengur undir nafninu Ye, átti að vera aðalatriðið á tónlistarhátíðinni Wireless í Finnsbury Park í norðurhluta Lundúna þrjú kvöld í röð í júlí. Skipuleggjendur hátíðarinnar hafa tilkynnt að þeir hafi aflýst henni. Í yfirlýsingu frá Promoter Festival Republic, sem er skipuleggjandi Wireless-tónlistarhátíðarinnar, segir að hátíðinni hafi verið frestað þar sem bresk stjórnvöld hafi neitað West um að koma til landsins. Miðar verði endurgreiddir. „Eins og á öllum Wireless-hátíðum var haft samráð við fjölda hagsmunaaðila áður en Ye var bókaður. Enginn þeirra lýsti yfir áhyggjum af bókuninni á þeim tíma.“ Skipuleggjendur fordæma gyðingahatur í yfirlýsingunni. „Við gerum okkur grein fyrir raunverulegum og persónulegum áhrifum sem það hefur haft. Eins og Ye sagði í dag viðurkennir hann að orð ein og sér séu ekki nóg. Þrátt fyrir þetta vonast hann til að fá tækifæri til að hefja samtal við gyðingasamfélagið í Bretlandi.“ West hafði fyrr í dag sagt að hann myndi vilja hitta gyðinga í Bretlandi. Hann hafi fylgst með umræðunni í kringum Wireless-hátíðina síðustu daga og vilji hitta fulltrúa gyðingasamfélagsins til að hlusta. Í yfirlýsingunni sagðist hann þurfa að sýna að hann hafi breyst í gegnum gjörðir sínar. „Ef þið eruð opin fyrir því þá er ég hér.“ Kenndi geðsjúkdómi um orðfæri og hegðun Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi hætti við að fjármagna tónlistarhátíðina um helgina. Pepsi átti að vera stærsti bakhjarl hennar. Diageo, sem framleiðir áfengi, hætti í kjölfarið sem bakhjarl og greiðslumiðlunin PayPal bannaði hátíðinni að nota vörumerki sitt í kynningarefni. Þrýstingur jókst síðan á skipuleggjendur hátíðarinnar í gær um að afbóka West. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hafði gagnrýnt hana fyrir valið. Ýmis ummæli og yfirlýsingar tónlistarmannsins hafa valdið miklu fjaðrafoki. Hann hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma. Í fyrra gaf hann út lag sem hét Heil Hitler og seldi boli með hakakrossinum á. Í kjölfar útgáfu lagsins var honum bannað að koma til Ástralíu. Í janúar birti West heildsíðuauglýsingu í The Wall Street Journal þar sem hann baðst afsökunar á hegðun sinni. Hann sagðist hvorki vera nasisti né gyðingahatari. Hann kenndi geðsjúkdómi um orðfæri og hegðun sína sem og heilaskemmdum sem hann sagðist hafa hlotið í bílslysi fyrir 25 árum. Hann sagðist hafa farið í fjögurra mánaða langt geðrof í fyrra þar sem hann glímdi við ofsóknaræði og hvatvísa hegðun sem hafi eyðilagt líf hans. Hann missti tengslin við raunveruleikann og segist hafa sagt og gert hluti sem hann sæi mikið eftir. West hefur ekki komið fram í Bretlandi síðan 2015 þegar hann var aðaltónlistarmaðurinn á Glastonbury-tónlistarhátíðinni.