Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Hyggjast kanna hvort West verði meinað að koma inn í landið

Read Full Article →

Bresk stjórnvöld hyggjast kanna hvort tónlistarmanninum Kanye West verði meinað að koma til landsins, vegna ummæla sem hann hefur látið falla um gyðinga. West, sem gengur undir nafninu Ye, hefur meðal annars lýst yfir gyðingaandúð og hrifningu á nasisma. Hann verður aðalatriðið á tónlistarhátíðinni Wirless í Lundúnum í júlí en skipuleggjendur hennar eru undir auknum þrýstingi að afbóka hann. Gosdrykkjaframleiðandinn Pepsi, sem var aðalbakhjarl hátíðarinnar, hefur meðal annars dregið sig úr því samstarfi. Ráðherrar hafa vald tl að banna erlendum ríkisborgurum að koma til Bretlands ef viðurvist þeirra er ekki talin „stuðla að almannaheillum.“. Samkvæmt Breska ríkisútvarpinu, BBC, eru ráðherrar í ríkisstjórninni að íhuga að meina West inngöngu inn í landið. Keir Starmer, forsætisráðherra Bretlands, hefur sagt að það valdi sér miklum áhyggjum að West hafi verið bókaður á tónlistarhátíðina. West var meinað að koma til Ástralíu í fyrra eftir að hann gaf út lagið Heil Hitler. Þingmenn bæði Íhaldsflokksins og Verkamannaflokksins hafa lýst yfir vilja til að meina tónlistarmanninum að koma til landsins.

Share this article