- What: A wolf attacked a woman in Hamburg
- Impact: Local authorities are monitoring the wolf's movements
Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 14 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Þýskaland Úlfur sem beit konu í Hamborg frjáls ferða sinna Markús Þ. Þórhallsson Úlfinum var sleppt en þarf að bera eftirlitsbúnað. Mynd úr safni. dr.dk / Patrik Stollarz Úlfi hefur verið sleppt aftur út í náttúruna eftir að hann beit konu í þýsku borginni Hamborg í liðinni viku. Það var í fyrsta skipti í meira en þrjátíu ár sem manneskja verður fyrir barðinu á úlfi í Þýskalandi, samkvæmt umfjöllun Bild. Dýraverndaryfirvöld festu sendi á dýrið þannig að unnt verði að fylgjast með ferðum þess. Fyrir 53 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar segjast ekki láta undan afarkostum Trumps Bandaríkjaforseti hótar enn að gereyða innviðum Írans verði Hormússund ekki opnað. Stórfelldar árásir Bandaríkjahers gætu hafist í kvöld gangi Íranar ekki að afarkostum forsetans. Öryggisráðið greiðir atkvæði um tillögu um leið til opnunar sundsins. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fjögurra daga heimför Artemis að hefjast Áhöfn Artemis II er á leið til jarðar að nýju eftir að hafa séð fjarhlið tunglsins og farið lengra út í geim en nokkur mannvera á undan þeim. Samband náðist að nýju við áhöfnina um miðnæturbil. Hún lýsti fjarhlið tunglsins nákvæmlega. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ísrael-Palestína WHO hættir brottflutningi særðra og sjúkra frá Gaza tímabundið Alþjóðaheilbrigðisstofnunin ætlar að rannsaka ástæður þess að starfsmaður á vegum hennar var drepinn á Gaza í gær. Ísraelskir hermenn skutu á fólksflutningabíl stofnunarinnar. Á meðan verður gert hlé á brottflutningi veikra Palestínumanna. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Aðalframkvæmdastjóri SÞ biður Bandaríkjaforseta að leggja ekki til atlögu að innviðum Írans Aðalframkvæmdastjóri Sameinuðu þjóðanna biðlar til Bandaríkjaforseta um að gera ekki þær þungu árásir sem hann hefur boðað á innviði í Íran. Þær séu almennt brot á alþjóðalögum og geti jafngilt stríðsglæpum. Íranir hafa sólarhring til að opna Hormús. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Rafmagn komið á Mosfellsbæ Markús Þ. Þórhallsson Mosfellsbær að sumri. Rafmagnslaust var þar um nokkra hríð í kvöld. RÚV / Ragnar Visage Rafmagn er komið á gervallan Mosfellsbæ eftir bilun sem varði frá því á níunda tímanum í kvöld. Bilunin varð í aðveitustöð sem tengir hluta bæjarins sem hafði áhrif á hitaveituna. Í tilkynningu á vef Veitna segir að heitavatnsdælur komi smám saman inn og að eina til tvær klukkustundir taki fyrir þrýsting að byggjast upp að nýju á Kjalarnesi. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti KR-ingar svöruðu Stjörnunni með sigri Jóhann Páll Ástvaldsson Linards treður. RÚV / Mummi Lú KR jafnaði metin í einvígi sínu gegn Stjörnunni í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta eftir 91-82 sigur. KR-ingar byrjuðu af miklum krafti og leiddu 20-14 eftir fyrsta leikhluta. KR leiddi 52-43 í hálfleik. Stjarnan jafnaði metin í fyrsta sinn í 70-70 þegar lítið var eftir af þriðja leikhluta. Þeir jöfnuðu svo metin aftur í 80-80 skömmu síðar. Undir lokin leiddi KR með fimm stigum 87-82. Að lokum sigldi liðið sigrinum heim. Linards var með 31 stig fyrir KR og Stjörnumegin var Pablo Bartone stigahæstur með 19 stig. Þórir Guðmundur Þorbjarnarson bætti við 22 stigum, 7 fráköstum, 13 stoðsendingum og 6 stolnum boltum. Fyrir 6 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindvíkingar svöruðu fyrir sig Jóhann Páll Ástvaldsson DeAndre Kane. Mummi Lú Grindavík jafnaði metin í einvígi sínu gegn Njarðvík í 8-liða úrslitum Íslandsmóts karla í körfubolta. Staðan er nú 1-1 eftir 84-86 sigur þeirra gulklæddu. Njarðvík var 49-44 yfir í hálfleik en Grindavík átti sterkan þriðja leikhluta sem vannst 18-24. Að lokum sigruðu Grindvíkingar með tveimur. Dwayne Lautier-Ogunleye var stigahæstur hjá Njarðvíkingum með 30 stig og fimm fráköst. Jordan Semple var stigahæstur Grindvíkinga með 22 stig. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Orkumál Eldingu sló niður í Búrfellslínu Eldingaveður á Suðurlandinu hefur valdið rafmagnsleysi víða. Öryggisstjóri Landsnets segir unnið að því að koma rafmagni aftur á og að ekki sé vitað til þess að bilun hafi orðið. Fyrir 7 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Valsmenn náðu þungu fyrsta höggi gegn KA Jóhann Páll Ástvaldsson Allan Norðberg. Rúv / Mummi Lú Valur og KA mættust í fyrsta leik liðanna í undanúrslitaviðureign Íslandsmóts karla í handbolta í kvöld. Valur vann stórsigur, 39-21. Leikurinn var nokkuð jafn fyrstu mínúturnar en Valsmenn slitu sig alveg frá KA um miðjan fyrri hálfleik. Heimamenn leiddu 17-9 í hálfleik. Gunnar Róbertsson var markahæstur Valsara með átta mörk og Arnór Snær Óskarsson fylgdi eftir með sjö. Jens Bragi Bergþórsson fór fyrir KA mönnum með fimm mörk. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Tíu ára frumkvöðull þrívíddarprentar hólka undir gjafir Kári Halldór, tíu ára strákur í Kópavogi, safnaði sér sjálfur fyrir þrívíddarprentara og hefur nú varla undan við afgreiða pantanir á hólkum undir peningagjafir. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Brasilía Lesa til að losna fyrr úr fangelsi Fangar í Brasilíu geta stytt fangelsisvist sína með því að lesa bækur. Einn þeirra sem nýta sér úrræðið er fyrrverandi forseti landsins sem afplánar dóm fyrir valdaránstilraun. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Bretland Hyggjast kanna hvort West verði meinað að koma inn í landið Breska ríkisstjórnin hyggst kanna hvort tónlistarmanninum Kanye West verði meinað að koma inn í landið vegna hatursfullra ummæla um gyðinga sem hann hefur látið falla. West á að koma fram á stórri tónlistarhátíð í Lundúnum í júlí. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag Íslendingar halda í hefðirnar þrátt fyrir tískubylgjur Fyrrverandi prófessor í íslenskum fræðum segir Íslendinga almennt halda í hefðirnar þegar kemur að nafngiftum nýbura. Um 250 eiginnöfn hafa bæst við mannanafnaskrá síðustu tvö ár. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Veður Mikill erill hjá björgunarsveitum í óveðrinu Verkefni björgunarsveita í dag hafa verið margvísleg. Fjöldi ökumanna hefur lent í vanda, foktjón hefur orðið víða og björgunarfólk hefur einnig aðstoðað við sjúkraflutninga. Appelsínugular viðvaranir eru enn í gildi um sunnanvert landið. 6. apríl 2026 kl. 17:56ÍÞRÓTTIR Blak Tveir oddaleikir í undanúrslitum Jóhann Páll Ástvaldsson HK konur gátu fagnað í dag. Það er oddaleikur fram undan gegn Aftureldingu. Mummi Lú Völsungur og HK knúðu fram oddaleiki í undanúrslitum Íslandsmóts kvenna í blaki með sigrum. Völsungur vann 3-1 sigur gegn KA á Húsavík og HK svaraði fyrir tap í fyrsta leiknum með öruggum 0-3 sigri á Aftureldingu. HK vann settin 25-22, 25-8 og 25-18. KA vann fyrsta settið 25-23 og voru öll næstu sett afar jöfn. Völsungur vann 21-25, 23-25 og 20-25. 6. apríl 2026 kl. 17:03INNLENDAR FRÉTTIR Akureyrarbær Mikill viðbúnaður vegna gruns um vélarbilun í einkaflugvél Neyðarstigi var lýst yfir og samhæfingarstöð almannavarna virkjuð vegna gruns um vélarbilun í einkaflugvél skömmu eftir flugtak frá Akureyrarflugvelli. Vélinni var lent á fimmta tímanum. 6. apríl 2026 kl. 16:49ERLENDAR FRÉTTIR Tækni og vísindi Fljúga umhverfis tunglið – manneskjur aldrei verið fjær jörðu Geimfarar í Artemis-leiðangrinum fljúga umhverfis tunglið í dag og fara lengra frá jörðu en nokkur maður hefur ferðast áður. Þau verða fyrstu manneskjurnar til að sjá fjærhlið tunglsins með berum augum. 6. apríl 2026 kl. 16:26ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar hafna vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael Ríkisfjölmiðill Írans segir stjórnvöld hafa hafnað vopnahléssamkomulagi við Bandaríkin og Ísrael. Í svari Írana, sem er í tíu liðum, er lögð áhersla á endanleg lok átakanna. 6. apríl 2026 kl. 15:19ÍÞRÓTTIR Handbolti Viggó færir sig um set til Flensborg Landsliðsmaðurinn í handbolta Viggó Kristjánsson mun ganga til liðs við þýska liðið Flensburg eftir ár. 6. apríl 2026 kl. 14:10MENNING OG DÆGURMÁL Ríkisútvarpið Samstarf Rásar 2 og Aldrei fór ég suður framlengt til fimm ára Tónlistarhátíðin Aldrei fór ég suður var haldin um páskana og tókst vel. RÚV var á staðnum og sinnti umfjöllun og útsendingum frá hátíðinni. 6. apríl 2026 kl. 14:10MENNING OG DÆGURMÁL Bretland Þrýstingur eykst á skipuleggjendur Wireless vegna Kanye West Stórir bakhjarlar hafa dregið til baka stuðning við tónlistarhátíð í Lundúnum sem fer fram í sumar vegna tónlistarmannsins Kanye West sem þar kemur fram. Ýmsir baráttuhópar gegn gyðingahatri hafa lýst undrun á bókuninni. 6. apríl 2026 kl. 12:56ÍÞRÓTTIR Fótbolti Sjáðu öll mörk bikarsins: KR áfram eftir markaleik Í dag fara fram fimm leikir í 32-liða úrslitum bikarkeppni karla í fótbolta. KR vann 4-2 sigur gegn Val. ÍA vann Hauka 4-0. Grindavík fór áfram í 16-liða úrslit eftir sigur á Keflavík í vítaspyrnukeppni. HK vann Fjölni 3-4 í miklum markaleik. Grótta vann 1-0 sigur gegn Álftanesi. Bikarkvöld er á dagskrá beint eftir leik KR og Valsmanna. Hér má sjá markasúpuna úr öllum leikjum dagsins. SAMANTEKT 6. apríl 2026 kl. 11:50ÍÞRÓTTIR Handbolti Kvennalandsliðið farið af stað til Færeyja Einar Örn Jónsson Uppfært kl. 13:08 þegar ljóst var að íslenska liðið gæti ferðast. Kvennalandslið Íslands í handbolta mætir Færeyjum í mikilvægum leik í undankeppni EM 2026 á miðvikudag. Erfiðlega gekk þó að komast til Færeyja vegna veðurhamsins sem gengur yfir landið. Íslenska liðið átti að fljúga með Icelandair til Vága í morgun en því flugi var aflýst. HSÍ náði þá að bóka liðið í vél Atlantic Airways sem fór af stað upp úr hádegi eftir talsverða seinkun. Leikurinn á miðvikudag er gríðarlega mikilvægur fyrir íslenska liðið í baráttu við Færeyjar um 2. sæti riðilsins, þar sem Færeyjar og Portúgal eru með 4 stig en Ísland 2. Svartfjallaland er efst með 6 stig. Leikmenn Íslands fagna sigrinum á Svartfjallalandi fyrr í keppninni. RÚV / Mummi Lú 6. apríl 2026 kl. 11:50INNLENDAR FRÉTTIR Lögreglumál Leita manneskju vegna gruns um rán og líkamsárás Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Lögregla leitar manneskju vegna gruns um rán og líkam