„Veiðin mun eiga sér stað á hinu svonefnda gráa svæði syðst í færeysku lögsögunni en þangað er fiskurinn að ganga úr írsku lögsögunni,“ segir Theodór Haraldsson, skipstjóri á Barða NK, sem heldur til kolmunnaveiða í dag. Þetta kemur fram á vef Síldarvinnslunnar þar sem segir að Barði NK, Beitir NK og Börkur NK fari allir til kolmunnaveiða í dag. Menn eigi von á góðri veiði Í viðtali á svn.is segir Theodór að honum lítist vel á komandi veiðar. Þeir verði væntanlega komnir á miðin á gráa svæðinu að lokinni viðkomu í Færeyjum annað kvöld. „Síðustu árin hefur þarna hafist kraftveiði um þetta leyti og hafa skipin verið að fá allt upp í 100 tonn á tímann. Í fyrra hófst veiðin þarna 6. til 10. apríl og gekk afar vel. Ég held að íslensku kolmunnaskipin séu yfirleitt að leggja af stað á miðin um þetta leyti og menn eigi von á góðri veiði,” er haft eftir Theodóri. Fyrsti farmurinn barst 8. apríl í fyrra Þá segir að í fyrra hafi fyrsti kolmunnafarmurinn á þessum árstíma borist til Neskaupstaðar þann 8. apríl. „Þá kom Börkur NK þangað með fullfermi eða 3.250 tonn sem fengust í sex holum á tveimur og hálfum sólarhring á gráa svæðinu,“ segir á vef Síldarvinnslunnar .