Bifreiðastöð Oddeyrar á Akureyri heyrir brátt sögunni til. Leigubílstjórar BSO keyra undir merkjum Hreyfils frá næstu mánaðamótum. Til stendur að byggja á reit leigubílastöðvarinnar og var gefinn frestur til 1. maí til að færa starfsemina. „Við sáum ekki rekstrargrundvöll áfram með því að fara héðan og missa verslunina og annað,“ sagði Smári Ólafsson, leigubílstjóri og stjórnarformaður hjá BSO þegar fréttastofa kom við á bifreiðastöðinni í dag. Þar er starfsfólk í símsvörun og lítil sjoppa með starfsmanni í afgreiðslu en fimm stöðugildi hverfa frá Akureyri við breytinguna. BSO var stofnuð 1953 og hefur verið í miðbæ Akureyrar í um 73 ár, þar af um 70 í leigubílastöðinni við Strandgötu. Eftir rúmar þrjár vikur heyrir vörumerkið Bifreiðastöð Oddeyrar sögunni til og gamla leigubílastöðin verður rýmd eftir áralangar deilur við Akureyrarbæ um hvort húsið eigi að standa eða víkja fyrir nýbyggingum. Landsréttur dæmdi BSO í vil í fyrra og vísaði máli stöðvarinnar aftur í hérað sem hafði áður vísað málinu frá. Það er ekki komið á dagskrá dómstólsins. Það sem eftir stendur af BSO eftir breytinguna er tvennt, bílstjórarnir og gamla símanúmerið sem verður áfram í notkun. Haraldur Axel Gunnarsson, framkvæmdastjóri Hreyfils, segir ánægjulegt að hefja starfsemi utan höfuðborgarsvæðisins og segir að til greina geti komið að færa enn frekar út kvíarnar. „Já, það er allt opið í þeim efnum. Það er alveg mögulegt að við förum að fara inn á Selfoss innan tíðar svo verður bara að koma í ljós hvort fleiri aðilar vilji koma til samstarfs við okkur.“