Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur

Read Full Article →

Innlent | mbl | 8.4.2026 | 23:29 | Uppfært 23:47 Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur „Gaman væri að fá iðnaðinn í lið með heilsunni,“ segir Tryggvi. Samsett mynd/mbl.is/Sigurgeir Setja bókamerki Tryggvi Helgason, barnalæknir og sérfræðingur í offitu barna, segir bestu leiðina til að minnka tíðni offitu vera að stýra verði á sykri. Hann kveðst hlynntur því að koma á sykurskatti hér á landi. Þetta kemur fram í grein Tryggva í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Hann segir það að hækka álögur á sykur sé fyrst og fremst lýðheilsuaðgerð. Ef tekjur myndast af slíkum álögum telur Tryggvi að þær ætti að nýta til að fjármagna niðurgreiðslu á hollum matvælum eins og grænmeti og ávöxtum og þannig styðja við neyslu þeirra. Umræðan er að aukast Í greininni ræðir hann m.a. þingsályktunartillögu Ölmu Möller heilbrigðisráðherra þar sem lagt er til að álögur á sérlega orkuríkar, næringarlitlar og gjörunnar matvörur verði hækkaðar. Umræða um offitu hefur aukist hér á landi á undanförnum árum. „Þingsályktunartillaga heilbrigðisráðherra um þetta málefni kom fram í byrjun árs með margar skynsamlegar tillögur sem ætlað er að snúa þeirri þróun við að á Íslandi sé offita enn vaxandi vandamál,“ skrifar Tryggvi. Hann rifjar upp að á Íslandi sé sykur fluttur inn í miklum mæli frá Evrópuríkjum án tolla og falli undir 11% virðisaukaskattsflokk sem matvæli. Frétt af mbl.is Sykurskatti velt upp Niðurgreiddur sykur Tryggvi segir að færa megi rök fyrir því að matariðnaðurinn á Íslandi noti niðurgreiddan sykur í matvæli, svo ekki sé minnst á innfluttan og tilbúinn og unninn mat með miklum sykri. „Ein af afleiðingum þess er að Íslendingar borða margfalt það magn sem ráðlagt er af sykri.“ Áður hefur sykurskattur verið í gildi hér á landi, frá árinu 2012 til 2015. Þá var skatturinn gagnrýndur af ýmsum hagaðilum. Gaman að fá iðnaðinn í lið með heilsunni Tryggvi segir að heilsan sé mannsins dýrasta djásn og mikil neysla á sætu geti verið dýr. Segir hann að það verði spennandi að fylgjast með hvort yfirvöldum takist að standast áhlaup iðnaðarins. „Gaman væri að fá iðnaðinn í lið með heilsunni. Niðurgreiddur sykur er ekki samfélagslega skynsamur og að hafa sykur áfram ódýran er ekki í takt við þekkingu nútímans,“ segir hann að lokum. Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » „Núna væri skemmtilegi parturinn að koma“ 58 ungmenni geta unnið Interrail-lestarpassa Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Miðlunum fylgi aukinn kvíði og svefnvandamál Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Lokun Hormússunds „óásættanleg“ Frestar árásum á Íran Þekkt leikkona styður Grindavík Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón Nýjast á mbl.is » „Núna væri skemmtilegi parturinn að koma“ 58 ungmenni geta unnið Interrail-lestarpassa Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Miðlunum fylgi aukinn kvíði og svefnvandamál Umræðan Ríkið og einstaklingurinn Verðmætasköpun í ríkisrekstri Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hverju er Trump að hóta? Börn lýsa óöryggi og vilja læra sjálfsvörn Viðræður um vopnahlé haldnar í Pakistan Mest lesið Í gær Í vikunni Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Lokanirnar kynntar með of litlum fyrirvara Næsta lægð á leiðinni Eiga von á kæru eftir akstur í veðrinu Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Drengurinn útskrifaður af gjörgæslu Andstaðan ekki verið meiri í 16 ár Ofbeldið fer fram hjá fullorðnum Borghildur komin undir læknishendur á Íslandi 90 sagt upp í þremur hópuppsögnum Alvarlegt umferðarslys í Mývatnssveit Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Niðurfelling kílómetragjalds fær Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Morgunblaðið stendur við aprílgabbið Leigja út heimili á ríflega milljón

Share this article