Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Umhleypingasamur mars með veðurviðvörunum flesta daga

Read Full Article →

Einhvers konar veðurviðvörun var í gildi einhvers staðar á landinu flesta daga marsmánaðar. Mikið var um að veður og færð yllu samgöngutruflunum og þónokkur snjóflóð féllu. Mánuðurinn var úrkomu- og umhleypingasamur og kaldari um land allt en að jafnaði síðustu 10 ár. Úrkoma var meiri en sól skein líka meira bæði í Reykjavík og á Akureyri. Þetta er meðal þess sem kemur fram í samantekt Veðurstofu Íslands á tíðarfari marsmánaðar 2026. Meðalhiti í Reykjavík var 0,2 stig en það er 1,5 stigum undir meðallagi síðustu tíu ára. Á Akureyri var meðalhiti í mars 0,1 stig. Það er 0,2 stigum undir meðallagi. Úrkoma var yfir meðallagi víðast hvar á landinu. Mánaðarúrkoma í Reykjavík var rúmlega 126 millimetrar eða 56 prósent umfram meðallag áranna 1991 til 2020. Á Akureyi var úrkoma 71 prósent meiri, eða rúmlega 81 millimetri. Fleiri sólskinsstundir og meiri snjór í Reykjavík en á Akureyri Þetta var þó ekki alslæmt því sólskinsstundir mældust tæplega 128 í Reykjavík sem er rúmlega 17 stundum yfir meðallagi. Akureyri voru sólarstundir 90 eða 12 yfir meðallagi. Í Reykjavík var jörð alhvít 20 morgna í mars sem er 11 fleiri en að meðallagi 1991 til 2020. Alhvítir morgnar á Akureyri voru hins vegar aðeins tíu, eða 12 færri en á meðalári.

Share this article