Security News

Cybersecurity news aggregator

INFO News RÚV

Næsthæsti meðalhiti sjávar í marsmánuði

Read Full Article →

Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 9 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Loftslagsmál Næst­hæsti með­al­hiti sjávar í mars­mán­uði Brynja Dögg Friðriksdóttir AARON FAVILA/AP Meðalhitastig sjávar var 20.97°c gráður í mars sem er næsthæsta hitastig sjávar sem mælst hefur í marsmánuði, samkvæmt upplýsingum frá Kópernikusi, loftslagstofnunar Evrópu. Þetta er jafnframt hæsta hitastig sjávar í marsmánuði síðan 2024, en það ár féllu mörg hitamet víða um heim. Hitastig sjávar bendir til breytinga á veðurfyrirbrigðinu El Nino sem á upptök sín í Kyrrahafinu og hefur áhrif á hita og öfgar í veðri á jörðinni. Fyrir 53 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Alþjóðamál Vill að Taívan og Kína vinni saman að því að fyr­ir­byggja stríð Leiðtogi stjórnarandstæðinga í Taívan fundaði með Xi Jinping í Peking í dag. Hún segir að stjórnvöld í Kína og Taívan eigi að leita lausna til að koma í veg fyrir stríð. Forseti Kína hefur fulla trú á að þjóðirnar verði sameinaðar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Japan Jap­an­ar losa aftur neyð­ar­birgð­ir af olíu Brynja Dögg Friðriksdóttir Sanae Takaichi forsætisráðherra Japan. EPA / Kimimasa Mayama Japanar ætla að losa neyðarbirgðir af olíu og setja í umferð í byrjun maí. Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, tilkynnti um þessa ákvörðun í dag. Magnið jafnast á við 20 daga notkun af hráolíu. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld nýta olíubirgðir landsins, en í mars var olía sett í umferð sem jafngildir 15 daga notkun. Um 95% af allri innfluttri olíu Japana kemur frá Mið-Austurlöndum. Hækkandi olíuverð hefur haft mikil áhrif í Japan og því ákváðu stjórnvöld að losa um olíubirgðirnar til að stemma stigu við verðhækkunum. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Íranar vilja ekki stríð við Banda­rík­in eða Ísrael Æðstiklerkur Írans sendi frá sér tilkynningu í gær og sagði að Íran muni verja rétt sinn sem þjóð. Khamenei hefur ekki enn komið fram opinberlega eftir að hann var valinn æðstiklerkur. Fyrir 3 tímumERLENDAR FRÉTTIR Kúba Rússar sýna sam­stöðu með Kúbu Aðstoðarutanríkisráðherra Rússlands fundaði með forseta Kúbu í gær. Rússneskt olíuflutningaskip flutti olíu til eyjunnar nýverið þvert á viðskiptaþvinganir Bandaríkjanna. Fyrir 4 tímumERLENDAR FRÉTTIR Innrás í Úkraínu Hlé á árásum vegna páska­halds Vladimir Pútín og Volodomir Zelensky segja báðir að 32 stunda hlé verði gert á árásum vegna páskahalds í Úkraínu. Átökin í Úkraínu eru nánast í kyrrstöðu og lítið þokast í þríhliða samningaviðræðum milli Rússlands, Úkraínu og Bandaríkjanna. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fyrrum ut­an­rík­is­ráð­herra lést af völdum áverka Brynja Dögg Friðriksdóttir Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans. EPA / Ballesteros Fyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn. Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu. Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Trump skaða trú­verð­ug­leika NATO meira en Pútín hefur gert Bandaríkjaforseti gagnrýnir NATO og aðildarríki þess harðlega fyrir að koma Bandaríkjunum ekki til hjálpar í stríðinu við Íran. Tékklandsforseti segir hann hafa skaðað bandalagið meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseta tókst á mörgum árum. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Eldur í kart­öflu­skúr í Skamma­dal Brynja Dögg Friðriksdóttir RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang. Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn. Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Játaði að hafa beitt stjúp­dótt­ur sína ít­rek­uðu kyn­ferð­is­of­beldi Maður sem dæmdur var í 13 ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni gekkst við 13 ákæruliðum. Honum er gert að greiða stúlkunni 6 milljónir í miskabætur. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn móður stúlkunnar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Ég er ekki fórn­a­lamb Ep­stein“ Forsetafrú Bandaríkjanna þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hún kallar eftir því að fórnarlömb hans fái áheyrn í Bandaríkjaþingi, en segist ekki vera á meðal þeirra. Sögusögnum um annað verði að linna. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það hefur hjálp­að mér í gegnum sorg­ina að syngja” Heiðurstónleikar Kristjáns Jóhannssonar til styrktar Bryndísarhlíð voru haldnir í kvöld. Á tónleikunum sungu tíu tenórar saman, þar á meðal faðir Bryndísar Klöru. Hann segir sönginn hjálpa í sorginni. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grinda­vík í und­an­úr­slit og KR komst yfir gegn Kefla­vík Grindavík er komið í undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir sigur á Val í kvöld. KR er svo skrefi nær sæti í undanúrslitum eftir að hafa unnið Keflavík í kvöld í þriðja leik liðanna. Fyrir 9 tímumÍÞRÓTTIR Íshokkí Ís­hokk­ílands­lið Ís­lands í góðum málum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ísland hefur spilað vel í Búlgaríu. ÍHÍ Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur farið vel af stað í B-riðli 2. deildar HM í íshokkí í Búlgaríu. Ísland sigraði Kirgistan í dag 6-3 en hafði áður unnið 6-5 sigur á Tapei og Ný-Sjálendinga 6-2. Ísland er á toppi riðilsins með 9 stig en Búlgaría er í 2. sæti með 8 stig. Ísland og Búlgaría mætast einmitt í næsta leik sem er á laugardag og Ísrael svo í lokaleik sínum á sunnudag. Alla jafna færi efsta sætið upp í A-riðil 2. deildar, en þar sem A-riðlinum var aflýst vegna stríðsins í Íran fer ekkert lið upp ú B-riðlinum. Leika átti A-riðilinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fyrir 9 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Bó söng Vetr­ar­sól inn í hjarta Höllu Forseti Íslands minnist Björgvins Halldórssonar. Hún sendir fjölskyldu og vinum söngvarans sem lést í morgun einlægar samúðarkveðjur. Hún segir Bó hafa sungið Vetrarsól inn í hjarta sitt. Fyrir 9 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Hinn eini sanni Björg­vin Ólafur Páll Gunnarsson tók saman umfjöllun um Björgvin Halldórsson látinn. Hér talar Björgvin sjálfur um upphafið og framtíðina. Brotin eru úr ýmsum Rokklandsþáttum. 9. apríl 2026 kl. 20:18ÍÞRÓTTIR Handbolti Valur einum sigri frá sæti í úr­slit­um Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val eru einum sigri frá því að komast í úrslit Íslandsmótsins í handbolta. Rúv / Mummi Lú Valsmenn eru nú aðeins einum sigri frá því sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir sigur á KA, 33-30 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Valur leiðir nú einvígið 2-0, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Valur spilaði til úrslita í fyrra en tapaði þá úrslitaeinvíginu fyrir Fram 3-0. Þriðji leikur Vals og KA verður spilaður á mánudaginn klukkan 19:00. Annar leikur FH og Hauka í hinni undanúrslitaviðureigninni verður annað kvöld á Ásvöllum en FH er 1-0 yfir þar. 9. apríl 2026 kl. 20:14INNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti 4000 símtöl borist til að athuga hvort síminn virki Sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu segir lokanir á 3G farsímakerfinu ganga vel. Lokaáfangi lokana á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi hófst í gær. 4000 hafa hringt í símsvara sem athugar hvort símar virki eftir lokanir. 9. apríl 2026 kl. 20:12INNLENDAR FRÉTTIR Andlát Söng sig inn í hjarta þjóð­ar­inn­ar og var vinur vina sinna Björgvins Halldórssonar var minnst í dag en hann var bráðkvaddur í morgun 74 ára að aldri. Hann var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar á hátt í sextíu ára ferli. 9. apríl 2026 kl. 19:46ÍÞRÓTTIR Handbolti Svart­fell­ing­ar gerðu sitt og Ísland spilar úr­slita­leik á sunnu­dag Ísland mun spila úrslitaleik við Portúgal á sunnudag um sæti í lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í handbolta. Þetta varð ljóst þegar Svartfjallaland vann Portúgal í riðli Íslands í kvöld. 9. apríl 2026 kl. 19:36ERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Af­drifa­rík­ar kosn­ing­ar fram­und­an í Ung­verja­landi Óháðar kannanir benda til þess að flokkur Viktors Orban forsætisráðherra Ungverjalands missi meirihlutann í kosningunum í Ungverjalandi. Kosningabaráttan er afar hörð. 9. apríl 2026 kl. 19:18INNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál For­eldr­ar þurfi að passa hvern­ig er talað um mat og hold­ar­far í kring­um ung­linga Aukið aðgengi að þjónustu vantar fyrir einstaklinga með átraskanir á fyrri stigum veikinda að sögn teymisstjóra átröskunarteymis BUGL. Oft séu sjúklingar orðnir mjög veikir þegar þeir leita eftir þjónustu. 9. apríl 2026 kl. 19:01ERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Evrópu hafa veitt Banda­ríkj­un­um marg­vís­leg­an stuðn­ing Framkvæmdastjóri NATO segir Evrópuþjóðir hafa nánast án undantekninga gert allt sem Bandaríkin hafi beðið um í tengslum við stríðið í Íran. Forseti Bandaríkjanna hótaði að draga landið út úr bandalaginu. 9. apríl 2026 kl. 18:21ERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfir 300 drepin í loft­árás­um Ísra­els­hers á Líban­on í gær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Að minnsta kosti 303 voru drepnir og 1150 særðust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons. Það segir að enn fleiri gætu fundist látnir í rústum húsa sem urðu fyrir loftárásum. Leitar- og björgunaraðgerðir standi enn yfir. Stjórnvöld í Ísrael samþykktu að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Aðalmarkmið þeirra væru afvopnun Hezbolla-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli ríkjanna. Björgunarsveitir leita í rústum húsa í Líbanon eftir loftárásir Ísraela síð

Share this article