Innlent | Morgunblaðið | 9.4.2026 | 9:30 Telur landlækni vera á villigötum Umsvif vefverslana með áfengi hafa aukist síðustu ár. Nýtt frumvarp á að setja skýran lagaramma um starfsemi þeirra. mbl.is/Eggert Jóhannesson Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Tengdar fréttir Vín í verslanir Fagna sakfellingu Smáríkisins fyrir héraðsdómi Sakfelldur fyrir sölu á hvítvínsbelju Smáríkið heldur áfram að stækka Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Ísland krafið um skýr svör » Fleiri tengdar fréttir Skiptar skoðanir eru á ágæti frumvarps um vefverslun með áfengi. Morgunblaðið fjallaði á dögunum um umsögn embættis landlæknis og annarra sem leggjast gegn frumvarpinu en landlæknir spáir því að samþykkt þess muni auka þjáningu, draga úr forvörnum og auka drykkju ungmenna. Arnar Sigurðsson, vínsali í Sante, sér hlutina öðrum augum og segir rök andstæðinga frumvarpsins í raun styðja samþykkt þess. „Ég segi að þetta séu einmitt rökin fyrir því að samþykkja frumvarpið, ekki á móti. Þetta er dæmigert um þessa umræðu: andstæðingar breytinga benda á raunveruleg vandamál en álykta svo að lausnin sé að breyta engu. Ef við skoðum hvert einasta áhyggjuefni sem landlæknir nefnir, þá er niðurstaðan sú sama: frumvarpið bætir ástandið, ekki öfugt.“ Skýrir starfsemi netverslana Í umsögn landlæknis var vísað til könnunar sem sýndi fram á að aðeins var spurt um skilríki í 36% tilvika hjá netverslunum. Arnar kveðst telja að betra lag komist á þetta verði frumvarpið samþykkt. „Þessar netverslanir starfa í dag á gráu svæði, án skýrrar lagaumgjarðar. Frumvarpið breytir þessu. Það gerir afdráttarlausa kröfu um rafræn skilríki við öll viðskipti. Rafræn skilríki eru óyggjandi sönnun á aldri – þú getur ekki falsað Íslykil eða rafrænt skilríki eins og þú getur falsað ökuskírteini eða bara litið nógu gamall út,“ segir hann og bætir við að í ársreikningum ÁTVR sé viðurkennt að verulegt sleifarlag sé á skilríkjaeftirliti í ríkinu. „Stór hluti ungmenna sem reyna að kaupa áfengi í búðunum fær afgreiðslu. Þannig að ef menn hafa raunverulega áhyggjur af ungmennum og áfengi ættu þeir að styðja frumvarpið af öllu afli. Rafræn skilríki í vefverslun eru mun strangari en sjónmat starfsmanns á kassa.“ Setur skýran lagaramma Þá gefur Arnar lítið fyrir áhyggjur landlæknis af heimsendingum á áfengi. Þær séu þegar til staðar og hafi ekki aukið almenna áfengisneyslu. „Íslendingum er fullkomlega heimilt að panta áfengi frá erlendum vefverslunum og fá það sent heim. Það er erfitt að finna fordæmi í íslenskum rétti þar sem neytendum er meinað að kaupa vöru af innlendri verslun sem þeir mega kaupa af erlendri. Þetta er í raun eitt af því sem frumvarpið sjálft bendir á. Frumvarpið er ekki að opna flóðgáttir, það kemst bara ein netverslun fyrir á skjánum í einu. Það er að setja skýran lagaramma utan um starfsemi sem þegar er til staðar. Fjölmargar vefverslanir starfa nú þegar, bæði í eigu íslenskra og erlendra aðila. Spurningin er ekki hvort þessi starfsemi eigi sér stað – hún gerir það – heldur hvort við viljum hafa reglur um hana eða ekki. Frumvarpið kveður á um leyfisskyldu, kröfu um rafræn skilríki og strangar reglur um afhendingu. Andstæðingarnir vilja halda áfram með óreglað ástand og kalla það forvarnir.“ Gagnsæir skattar í ríkissjóð Hvað með rökin um að aukin samkeppni leiði til lægra verðs og þar með aukinnar neyslu? „Þetta er klassísk röksemdafærsla sem hljómar vel á yfirborðinu en stenst ekki skoðun. Í fyrsta lagi hefur ríkið öflugt tæki til að stýra verði: áfengisgjaldið. Eins og Viðskiptaráð bendir réttilega á í sinni umsögn eru þessir skattar óháðir fyrirkomulagi ríkiseinokunar. Ef markmiðið er hátt verð af lýðheilsuástæðum, sem reyndar er klassískur fátæktarskattur, þá á að gera það með gagnsæjum sköttum sem renna í ríkissjóð, ekki með því að vernda hagnað heildsala í gegnum óhagkvæmt ríkisfyrirtæki. Óhagkvæmur ríkisrekstur Og þetta er kannski mikilvægasta atriðið sem fólk skilur ekki: lág álagning ÁTVR, þessi 12-18%, tryggir ekki neytendum lágt verð. Hún tryggir birgjunum hærri heildsöluálagningu. Verðmunurinn á milli ÁTVR og Sante er 20-30% á vörum eins og Guinness, Aperol og Lagavulin. Þessi munur er ekki skattur – ríkið fær sín gjöld hvort sem er. Þetta er hreinn sóunarskattur sem rennur til heildsala og í óhagkvæman ríkisrekstur.“ Arnar vísar til hilluplásshafa og aðspurður segir hann að það séu áfengisheildsalar sem eigi tryggt hillupláss í Vínbúðunum. „Kerfið hentar þeim fullkomlega. Þeir þurfa ekki að keppa um neytandann, þeir þurfa ekki að bjóða samkeppnishæft verð, og tapið á smásölunni er niðurgreitt með hagnaði af tóbaksheildsölu ríkisins – hagnaði sem ætti að renna í ríkissjóð. Velferðarkerfi fyrir heildsala Þetta er í raun velferðarkerfi fyrir heildsala á kostnað neytenda og ríkissjóðs. Þegar þessir aðilar og bandamenn þeirra tala um lýðheilsu og forvarnir, þá er vert að spyrja sig hvort það sé raunveruleg umhyggja eða hvort þeir séu bara að verja sína eigin stöðu.“ Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Tengdar fréttir Vín í verslanir Fagna sakfellingu Smáríkisins fyrir héraðsdómi Sakfelldur fyrir sölu á hvítvínsbelju Smáríkið heldur áfram að stækka Segja eftirliti ábótavant hjá netverslunum Ísland krafið um skýr svör » Fleiri tengdar fréttir Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Útilokar ekki endurkomu Telur landlækni vera á villigötum Gerir lítið úr rifrildi sínu við leikmann Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Kostnaður langt umfram áætlun Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Trump: Íran mun ekki auðga úran Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Útilokar ekki endurkomu Telur landlækni vera á villigötum Gerir lítið úr rifrildi sínu við leikmann Telja stjórnina hafa staðið sig illa í málefnum útlendinga Ég er brjáluð út í Lamar Odom Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Þjóðarsorg í Líbanon: Leiðtogar fordæma árásir Á vakt við óviðunandi aðstæður í áratugi Telur landlækni vera á villigötum Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Ljá máls á þjóðarsátt Kólnar með slydduéljum seinnipartinn Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir