Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Kalla eftir sérfrumvarpi um landeldi

  • What: An article discusses the call for a special bill regarding land-based aquaculture in Iceland.
  • Impact: The article highlights the desire of land-based aquaculture companies to be associated with agriculture rather than fisheries.
Read Full Article →

200 mílur | Morgunblaðið | 11.2.2026 | 6:30 Kalla eftir því að landeldi fái sérfrumvarp Landeldisfyrirtæki hafa lengi viljað láta spyrða sig við landbúnað fremur en sjávarútveg. mbl.is/Eggert Jóhannesson Hátt í þúsund umsagnir hafa borist um drög að nýju lagafrumvarpi Hönnu Katrínar Friðriksson atvinnuvegaráðherra um lagareldi. Athygli vekur þó að þorri umsagnanna snýr að laxeldi í sjókvíum en lítið er minnst á landeldi. Þetta er ein af mörgum vísbendingum um að sjókvíaeldi og landeldi heyri ekki saman í einu frumvarpi, eða svo segir Lárus Ásgeirsson, stjórnarformaður landeldisfyrirtækisins Laxeyjar í Vestmannaeyjum og formaður landeldisdeildar Bændasamtaka Íslands (BÍ). „Við viljum aðskilja landeldið frá sjókvíaeldi með afgerandi hætti,“ segir Lárus í samtali við 200 mílur. Forsvarsmenn landeldisfyrirtækja hafa lengi viljað láta spyrða sig við landbúnað fremur en sjávarútveg vegna þess að rekstrarumhverfi eldis sem fram fer á landi í lokuðum kerum eigi meira skylt með dýraeldi á landi en í sjó. Sést það meðal annars á því að hagsmunasamtök landeldis eru innan vébanda BÍ, sem eru ein þeirra samtaka sem sent hafa inn umsögn um frumvarpið. Frétt af mbl.is Drög að nýju eldisfrumvarpi „Að mati Bændasamtakanna eru frumvarpsdrögin á engan hátt til einföldunar regluverksins gagnvart landeldi heldur eru drögin samin út frá sjókvíaeldi og ekki er tekið fullnægjandi tillit til sérstöðu landeldis,“ segir í umsögn samtakanna. Þar segir jafnframt að svo virðist sem núgildandi regluverki hafi verið steytt saman í einn kafla um landeldi án þess að tekið hafi verið tillit til markmiða frumvarpsins eða tilgangs. „Bændasamtök Íslands hafa verulegar athugasemdir við það að landeldið sé undir sama lagabálki og sjókvíaeldi þar sem sömu reglur, skilyrði, eftirlit, áhættur o.fl. eiga ekki við í tilviki landeldis,“ segir í umsögn BÍ og er þar jafnframt lagt til að sá kafli frumvarpsins sem fjallar um lagareldi verði færður úr frumvarpsdrögunum og stofnað verði til sérstaks frumvarps um landeldi. Meira skylt við dýraeldi á landi „Mjög margt í sjókvíaeldi á bara ekkert við um eldi á landi, þar sem við erum í stýrðu umhverfi,“ segir Lárus. „Við erum ekki að nota takmarkaða auðlind eins og þar sem þú ert með sjókvíar í afmörkuðum fjörðum og annað slíkt.“ Beðinn um að fara nánar í saumana á því í hverju munurinn liggur áréttar Lárus þá afstöðu BÍ að landeldi sé sambærilegt við eldi á öðrum dýrum á landi. Lárus Ásgeirsson „Við erum ekki með þetta úti í náttúrunni þar sem er hætta á sjúkdómum og óværu sem kemur utan frá. Við erum búin að loka alveg á það í svona stýrðu kerfi,“ segir hann. „Við stýrum hitastigi, vatnsgæðum, þéttleika og öðru slíku og við búum til bestu skilyrðin fyrir fiskinn að vaxa og dafna í óstressuðu umhverfi því það eru engir umhverfisþættir sem trufla fiskinn.“ Lárus segir að vöktun og eftirlit með starfsemi í sjókvíum eigi því ekki við um landeldi og óskilvirkt sé fyrir fyrirtækin að þurfa að sinna ónauðsynlegu eftirliti. Þá skjóti það skökku við að starfsleyfi eigi aðeins að gilda til 16 ára, meðal annars vegna þess að landeldi fylgi töluvert meiri uppbygging á mannvirkjum en sjókvíaeldi. „Það tekur okkur kannski sjö, átta ár að byggja upp þessi mannvirki, fá erlenda aðila að, bankar koma að þessu og taka veð í eignum,“ segir Lárus. „16 ár eru bara búin áður en þú veist af. Þetta er allt of stutt starfsleyfi því mannvirkin geta staðið þarna í 50-100 ár.“ Hann bendir á að rekstur Laxeyjar hafi hafist fyrir um þremur árum og stefnt sé að því að uppbyggingu verði lokið að öðrum fimm árum liðnum. Þá væru aðeins átta ár eftir af starfsleyfinu, ef miðað er við þann leyfistíma sem kveðið er á um í frumvarpinu. Einnig nefnir Lárus að ef gerlegt eigi að vera að laða fjárfesta að borðinu þurfi bæði regluverk og starfsumhverfi að vera skýr og fyrirsjáanleg. „Lögin eru þannig skrifuð að þau skapa hættu fyrir fjárfesta en þetta er það mikil fjárfesting að við þurfum erlent fjármagn inn í þetta líka,“ segir hann. Landeldi Laxeyjar í uppbyggingu 2025. Landeldi kallar á mikil mannvirki eins og sjá má en í frumvarpinu er þó aðeins miðað við að starfsleyfi gildi í 16 ár. Arðbært fyrir þjóðarbúið Að sögn Lárusar er landeldi afar arðbært fyrir þjóðarbúið. Miðað við þau verkefni sem nú eru í gangi og hafa verið fjármögnuð að hluta eða miklu leyti áætlar Lárus að þau útflutningsverðmæti sem skapist í kjölfarið gætu numið allt að 150 milljörðum árið 2030. „Þetta mun hafa gríðarleg áhrif á hagkerfið,“ segir hann. Einnig bendir hann á að landeldi sé með afar lágt kolefnisspor í samanburði við aðra matvælaframleiðslu. „Lagaumhverfið ætti auðvitað að horfa til þessara þátta frekar en að reyna að takmarka starfsemina með þeim hætti sem gert er í frumvarpinu,“ segir Lárus að lokum. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Gámar af fiski strand í Evrópu „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Már Guðmundsson mun bera vitni í miskabótamálinu Gámur féll útbyrðis í brotsjó Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum Gámar af fiski strand í Evrópu „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Gámur féll útbyrðis í brotsjó „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Sóttu alvarlega slasaðan sjómann Sóttu alvarlega slasaðan sjómann Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Gámar af fiski strand í Evrópu Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Talsvert af loðnu á miðunum Gott útlit á loðnuvertíð 3.300 tonn af loðnu komin í gær „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Fleira áhugavert Ók í hláturgasvímu á ólétta konu Skýr arðsemismarkmið mikilvæg Epstein-vináttan sem skekur bresk stjórnmál Stal úlpu, réðst á tvær konur og stakk pilt Fleiri tegundir » Skoða allar landanir » Gámar af fiski strand í Evrópu „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Már Guðmundsson mun bera vitni í miskabótamálinu Gámur féll útbyrðis í brotsjó Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Talsvert af loðnu á miðunum Gámar af fiski strand í Evrópu „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Gámur féll útbyrðis í brotsjó „Plataðir til að kjósa Flokk fólksins“ Sóttu alvarlega slasaðan sjómann Sóttu alvarlega slasaðan sjómann Selja „snæþorsk“ til Gordons Ramsay Þórður Már ráðinn skipulagsfulltrúi 15 milljarðar í sjávarútveg á norðurslóðum Gámar af fiski strand í Evrópu Vilja fá Gísla Jóns á Akranes Talsvert af loðnu á miðunum Gott útlit á loðnuvertíð 3.300 tonn af loðnu komin í gær „Það er byrjuð bullandi vertíð“ Fleira áhugavert Að minnsta kosti sex hlíft með yfirstrikunum Ók í hláturgasvímu á ólétta konu Myndskeið: Upprættu hóp sem flutti kókaín til Íslands Samkomulag loks í augsýn rúmum sjö árum síðar Fleiri tegundir » Skoða allar landanir »

Share this article