Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“

Read Full Article →

Innlent | mbl | 9.4.2026 | 11:05 Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Rafn segist vona að Ragnar hætti ekki að gagnrýna yfirstjórn spítalans. Samsett mynd/Aðsend Sólrún Lilja Ragnarsdóttir [email protected] Setja bókamerki Rafn Benediktsson, framkvæmdastjóri bráða-, lyflækninga- og endurhæfingarþjónustu Landspítalans, segir Ragnari Frey Ingvarssyni lækni ekki hafa verið sagt upp, heldur sé verið að hagræða vegna skýrrar aðhaldskröfu stjórnvalda sem gerð er á Landspítalann. Ragnar hafi einungis verið í hlutastöðu sem sérfræðingur í almennum lyflækningum en til standi að sameina nokkrar hlutastöður í heil stöðugildi. Læknum sem hafa verið í ákveðnum hlutastöðum hafi því verið tjáð að staða þeirra hafi verið lögð niður en þeim á sama tíma boðið að hækka starfshlutfallið. Ragnar þar á meðal. Í raun sé því ekki verið að fækka fólki á gólfinu heldur skapa svigrúm til að ráða lækna í 100 prósent stöður. „Hjá mér snýst þetta um að verja þjónustuna við fólkið og horfa til þess hvernig ég geti nýtt mínar stöður til þess að tryggja þjónustuna án þess að það verði einhver katastrófa. Þá horfir málið þannig við að við erum með nokkrar mjög litlar stöður sem eru ekki nýttar,“ segir Rafn í samtali við mbl.is. Þrátt fyrir að þær stöður kosti ekki peninga akkúrat núna þá hafi þær áhrif þegar farið sé í að ráða inn fleira fólk, líkt og þarf að gera. Frétt af mbl.is Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Margir lýst furðu sinni á uppsögninni Ragnar greindi frá því á Facebook í gærkvöldi að framkvæmdastjóri á spítalanum hefði hringt í hann og tilkynnt honum að staða hans yrði lögð niður. Sagðist hann hafa óskað eftir skýringum og fékk hann sömu skýringu og Rafn gefur nú: skýr aðhaldskrafa frá stjórnvöldum. Ragnar sagðist efast um að mikið sparaðist með uppsögn hans þar sem hann væri í launalausu leyfi næstu sjö mánuði. Fjölmargir hafa lýst furðu sinni vegna uppsagnar Ragnars, þar á meðal Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknafélags Íslands, sem segir í færslu á Facebook að leitun sé að jákvæðari, áhugasamari, lausnamiðaðri og manneskjulegri lækni en Ragnari. Spyr hún hvort spítalinn megi virkilega missa starfskrafta hans. Oddur Steinarsson, heimilislæknir og fyrrverandi framkvæmdastjóri lækninga hjá heilsugæslunni á höfuðborgarsvæðinu, segir áhugavert að góðum lækni eins og Ragnari sé sagt upp aðeins hálfu ári eftir að starfsfólk spítalans fór í sendiferð til Skandinavíu í þeim tilgangi að lokka íslenska lækna heim. Sársaukaminnstur starfsmissir Spurður hvort það hafi legið beinast við að leggja niður stöðu Ragnars í þessum hagræðingaraðgerðum, segir Rafn að horft hafi verið til þess hvar sársaukaminnst væri fyrir fólk að missa starfið sitt. „Við búum til ákveðnar verklagsreglur þar sem við skoðum hvaða stöður eru ónýttar. Hvernig förum við að því að verja þjónustuna, hvar er sársaukaminnst fyrir fólk að missa starfið og þvíumlíkt. Þannig förum við yfir allt sviðið okkar.“ Nokkur stöðugildi sem heyra undir svið Rafns eru frá 15 til 20 prósenta starfshlutfalli. Samkvæmt upplýsingum frá Landspítalanum þótti skynsamlegra að leggja niður slík stöðugildi í stað þess að leggja niður 100 prósent stöður. Þannig fáist meira virði og starfsframlag heilt yfir. „Það eru nokkur stöðugildi sem um ræðir og þau eiga langflest það sammerkt að þau eru í raun og veru ekki setin þannig að fólk er að vinna annars staðar. Það er ekki að vinna klíníska vinnu á spítalanum,“ útskýrir Rafn og heldur áfram: „Ég er ekki að fækka fólki á gólfinu hjá mér núna því að það er, þetta eru stöðugildi sem eru til reiðu en eru í raun og veru föst.“ Miklu einfaldara sé að vera með einn lækni í 100 prósent stöðu heldur en fjóra í 25 prósent stöðu. Frétt af mbl.is Framleiða sex þúsund egg fyrir miðnætti Vonar að Ragnar hætti ekki að gagnrýna Rafn segir að Ragnari standi til boða að hækka starfshlutfall sitt hjá spítalanum og halda þannig starfi sínu. „Þetta snýst alls ekki um persónur, þetta snýst um aðhaldskröfu.“ Ragnar hefur í gegnum tíðina verið ófeiminn við að gagnrýna yfirstjórn spítalans, en hann var til að mynda einn af þeim sem gagnrýndu að starfsfólk fengi ekki páskaegg að gjöf fyrir páska. Rafn segir gagnrýni Ragnars ekki hafa haft nein áhrif á þá ákvörðun að leggja stöðu hans niður, enda fagni hann allri gagnrýni. „Ef við hefðum ekki gagnrýni þá veit ég ekki hvar við værum. Það verður að vera gagnrýni og aðhald á stofnun eins og Landspítalanum. Í umhverfi dagsins í dag er annað ekki hægt. Þannig að ég vona að Ragnar hætti ekki að gagnrýna okkur.“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Holur myndast víða á vegum Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Netanjahú: Árásirnar munu halda áfram Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Ljá máls á þjóðarsátt Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Ljá máls á þjóðarsátt Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Nýjast á mbl.is » Landlæknisembættið vanmetur hjúkrun Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Holur myndast víða á vegum Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Bretar fylgdu þremur rússneskum kafbátum eftir Umræðan Bretland, Brexit og hættulegri heimur Kennitölulausu Reykvíkingarnir Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppsögn Ragnars: „Þetta snýst alls ekki um persónur“ Íranar stöðva umferð um Hormússund á ný Heuermann játaði að hafa myrt konurnar Smáríkið áfrýjar dómi um hvítvínsbelju Mest lesið Í gær Í vikunni Kostnaður langt umfram áætlun Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Kvöldfréttir sjónvarps víki ekki fyrir íþróttum Boða foreldra á fund tæplega mánuði eftir slysið Ríkisstjórnin aftur í Tjarnargötu Síðbúin vorhret mun verri en páskahret Segir Íslendinga borða alltof mikinn sykur Stikla úr óbirtri heimildarmynd sýnd annað kvöld Freyr Gígja kominn í dómsmálaráðuneytið Ljá máls á þjóðarsátt Þekkt leikkona styður Grindavík Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Var neitað um starf og brást illa við Tveir á slysadeild eftir eldsvoða í Kópavogi Hafði fengið sér tvo bjóra og „tvær línur“ Kaupendur vinna enn eitt Canexel-málið Segir samningsstöðu Íslands ekki sterka ESA hefur hafið formlega málsmeðferð gegn Íslandi Hnuplaði úr verslun strax við komuna til landsins Myndir: Reyndu að kveikja í bandaríska fánanum Tónleikum Ingó aflýst: „Löngu orðið neteinelti“ Mörg óvænt nöfn á meðal umsækjenda Fylgstu með lægðinni ganga yfir Íslensk kona í öndunarvél í Búdapest Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Eyfi ósáttur við skattinn: „Þetta mun ég aldrei borga“ Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir

Share this article