Innlent | mbl | 12.5.2026 | 20:20 Uppsögnin ekki í samhengi við fleiri Ragnar telur uppsögn sína ólögmæta. Samsett mynd/Aðsend/mbl.is/Sigurður Bogi Setja bókamerki Uppsögn Ragnars Freys Ingvarssonar læknis virðist ekki hafa verið í tímalegu samhengi við fleiri uppsagnir lækna í hlutastörfum á Landspítalanum. Steinunn Þórðardóttir, formaður Læknasambands Íslands, segir það vekja upp spurningar og valda viðvarandi óvissu hjá hópi lækna. Þetta kemur fram í viðtali við Steinunni sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins. Þar er leitað álits formanns læknafélagsins á uppsögn Ragnars sem vakti mikla athygli. Ragnar starfaði í hlutastarfi á Landspítalanum þegar honum var sagt upp störfum. Hann var í launalausu leyfi en Landspítalinn bar fyrir sig hagræðingarkröfu á spítalann og sagði að ákveðið hefði verið að segja upp læknum í hlutastarfi í stað þeirra í fullu starfi. Læknum í hlutastarfi hafi verið boðið að hækka starfshlutfall sitt í fullt starf en Ragnar Freyr hefur áður sagt að honum hafi ekki verið boðið slíkt. Frétt af mbl.is Umræðan vekur ugg meðal lækna Ekki kunnugt um sambærilega uppsögn Í viðtalinu við Steinunni segir hún að Læknafélaginu sé ekki kunnugt um að heilbrigðisstofnun hér á landi hafi lagt niður hlutastörf lækna eingöngu vegna hagræðingarkröfu. Þá hefur LÍ ekki fengið fregnir af öðrum læknum á Landspítalanum sem hafa fengið bréf um niðurlagningu starfs síns hjá spítalanum. „Í þessu sambandi má einnig velta fyrir sér hvort almennt sé mikið um að læknar í hlutastörfum á Landspítalanum séu þess valdandi að læknar sem vilja ráða sig í fullt starf komist ekki að. Það er ekki upplifun þeirra lækna sem félagið hefur rætt við að mikið sé um slíkt, þvert á móti séu margar heilar stöður lækna ómannaðar í ýmsum sérgreinum og vöntun á fólki,“ segir Steininn. Frétt af mbl.is Segir framkvæmdastjóra Landspítala fara með ósannindi Spítalinn þarf að taka af allan vafa Ragnar Freyr er formaður Læknafélags Reykjavíkur og er meðstjórnandi í stjórn LÍ. Þá hefur hann talað opinskátt um hvað megi betur fara á Landspítalanum og verið ófeiminn við að gagnrýna stofnunina. Spurð út í stöðu Ragnars og gagnrýni hans á spítalann segir Steinunn mikilvægt að spítalinn taki af allan vafa um að trúnaðarstörf Ragnars og málflutningur hans í tengslum við þau hafi haft áhrif á ákvörðunina um að leggja starf hans niður. Frétt af mbl.is „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Blogga um frétt Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 58:61 Uppsögnin ekki í samhengi við fleiri Íslendingarnir atkvæðamiklir í bikarnum Langaði að gubba af þreytu Konungleg fjölskyldustund í Disneylandi Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Forn íslensk handrit komin frá Svíþjóð Frambjóðandi sagðist vilja „skjóta“ sviðsstjórann Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Umræðan vekur ugg meðal lækna Aðkoman vægast sagt ömurleg Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Nýjast á mbl.is » Tindastóll - Grindavík, staðan er 58:61 Uppsögnin ekki í samhengi við fleiri Íslendingarnir atkvæðamiklir í bikarnum Langaði að gubba af þreytu Konungleg fjölskyldustund í Disneylandi Umræðan Hvernig teljum við upp í tólf? Fullveldið greinilega engin fyrirstaða Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Viðræðum um Grænland miðar vel Varar við verktöfum Mest lesið Í gær Í vikunni Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“ Lögreglan lýsir eftir fjórmenningum Flugmenn Icelandair neita að stökkva til Leynd yfir samskiptum Lést af völdum þungrar lyfjameðferðar Erlendir sjö sinnum fleiri í Reykjavík Umræðan vekur ugg meðal lækna Aðkoman vægast sagt ömurleg Óskar eftir brottvísun: Dvalið hér ólöglega í 2-3 ár Varar við verktöfum Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi „Þetta er búið að eyðileggja“ Flugvirkjum hótað brottrekstri í kjaradeilunni Guðmundur fjarlægir myndbandið: „Dómgreindarleysi“ Jörð skelfur við Ok Sex ungmenni réðust á konu í Mjóddinni „Fólk var að borga fyrir útsýni“ Lumbrar á Pétri Marteins í kosningamyndbandi FF Sjö sóttu um embætti skólameistara 160 milljónir sviknar út úr Arion: Rúmeni í haldi Alvarleg staða og ógnar velferð landsmanna Veit ekki af hverju flugmennirnir mættu ekki Lögðu hótelherbergið í rúst og flúðu Erla Björg ráðin úr hópi 48 umsækjenda Gífurlegt tjón eftir sinnuleysi Samfélagslegt stórhrun að óbreyttu Banaslys í umferðinni: Ók gegn rauðu ljósi Sérsveit til aðstoðar í Eyjum Enn eitt dæmi um gullhúðun Inga fer mikinn í athugasemdakerfi: „Þetta er BULL“