Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þreföld eftir­spurn eftir hlut­deildar­lánum

Read Full Article →

HMS hefur nýlega lokið yfirferð umsókna um hlutdeildarlán sem bárust stofnuninni í mars en alls voru 92 umsóknir teknar til yfirferðar. Um 87 þeirra komu frá umsækjendum sem höfðu þegar fengið samþykkt kauptilboð í fasteign áður en sótt var um hlutdeildarlán. Í mars voru að lágmarki 458 milljónir króna til úthlutunar en samanlögð umsótt lánsfjárhæð nam rúmlega 1.550 milljónum króna. Eftirspurn eftir hlutdeildarlánum var því verulega umfram það fjármagn sem stóð til boða og af þeim sökum þurfti að varpa hlutkesti á milli umsókna sem uppfylltu öll skilyrði til að skera úr um hvaða umsóknir fengju úthlutun. Sjá einnig Umsóknir um hlutdeildarlán stóraukast Á vef HMS segir að umsækjendur með samþykkt kauptilboð njóti forgangs að hlutdeildarlánum umfram þá sem ekki hafa fengið slíkt tilboð. Þá er jafnframt miðað við að HMS úthluti að minnsta kosti 20% hlutdeildarlána til kaupa á íbúðum utan höfuðborgarsvæðisins. „Alls voru 34 umsóknir dregnar út af fulltrúa Sýslumannsins á höfuðborgarsvæðinu í samræmi við forgangsreglur úthlutunar. Heildarfjárhæð úthlutaðra lána nam um 516 milljónum króna. Samtals hlutu 19 umsóknir því ekki úthlutun í mars þrátt fyrir að uppfylla öll skilyrði,“ segir í greiningu HMS. Yfir helmingur samþykktra lána var vegna íbúðakaupa í Reykjavík en um þriðjungur fór til kaupa utan höfuðborgarsvæðisins. Líkt og í fyrri úthlutunum ársins voru fleiri lán veitt einstaklingum en hjónum og sambúðarfólki.

Share this article