Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Þýska sendiráðið gengur inn í kaup Kaldalóns

Read Full Article →

Þýska sendiráðið Laufásvegar 31 nýtti sér forkaupsrétt og gekk inn í kaup Kaldalóns á húsnæðinu af FÍ Fasteignafélagi. Sala á Laufásvegi 31 bíður nú samþykki dómsmálaráðuneytisins fyrir eigandaskiptum. Húsnæðið að Laufásvegi 31 er 1.271 fermetri að stærð. Leigutakar í húsnæðinu eru sendiráð Bretlands og Þýskalands. Samkvæmt heimildum Viðskiptablaðsins var það þýska sendiráðið sem nýtti forkaupsrétt og kaupir húsnæðið í heild sinni. Í tilkynningu FÍ Fasteignafélags segir að komi til þess að ráðuneytið synji umsókn forkaupsréttarhafa skuldbindi Kaldalón sig til að kaupa viðkomandi eign til samræmis við skilmála kauptilboðsins sem skrifað var undir þann 12. desember 2025. Kaldalón náði í desember sl. samkomulagi um kaup á öllu eignasafni FÍ Fasteignafélags slhf. fyrir 13,15 milljarða króna. Samkomulagið fól í sér að kaupverðið verður að fullu greitt með útgáfu nýrra hluta og skuldabréfa til seljenda, sem eru að mestu leyti lífeyrissjóðir. Sjá einnig Kaldalón kaupir fast­eignir fyrir 13,2 milljarða Fast­eigna­safnið saman­stendur af 11 eignum á höfuð­borgar­svæðinu, sam­tals 25.200 fer­metrum, og telur meðal annars 100 her­bergja hótel við Hverfis­götu 103, skrif­stofu­húsnæði að Borgar­túni 25, sendiráðsaðstöðu við Laufás­veg 31, verslunar- og þjónustu­húsnæði við Bern­höft­storfu í miðbæ Reykja­víkur og heilsugæslu í Glæsi­bæ auk fleiri eigna. Í ljósi þess að þýska sendiráðið nýtti sér forkaupsrétt að Laufásvegi 31 samkvæmt ákvæðum viðeigandi leigusamnings er sú fasteign undanskilin sölunni til Kaldalóns. Í tilkynningu sem Kaldalón birti eftir lokun Kauphallarinnar kemur fram að endanlegt kaupverð fasteignafélagsins sé 12.280 milljónir króna. Kaupin séu fullfjármögnuð með útgáfu hlutafjár og skuldabréfa til seljanda. Áætluð afhending á fasteignum er á öðrum ársfjórðungi 2026. Endanlegt söluverð fasteignasafnsins í heild sinni nemur 13.105 milljónum króna, að því er kemur fram í tilkynningu FÍ Fasteignafélags. Miðað við það nemur kaupverð Laufásvegar 31 825 milljónum króna. Fyrirtækjaráðgjöf Íslandsbanka er umsjónaraðili söluferlis FÍ fasteignafélags. BBA//Fjeldco veitti lögfræðilega ráðgjöf.

Share this article