Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Gamla sendiráðið breytist mikið

  • What: Redesign and redevelopment of the old U.S. Embassy in Reykjavík
  • Impact: Changes to the area's infrastructure and usage
Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 7.3.2026 | 12:00 Gamla sendiráðið breytist mikið Laufásvegur 21-23. Miðjubyggingin þar sem gengið var inn verður rifin. mbl.is/Kristinn Magnússon Höskuldur Daði Magnússon [email protected] Setja bókamerki Miklar breytingar eru fyrirhugaðar á gamla húsnæði bandaríska sendiráðsins við Laufásveg og á aðliggjandi lóðum. Borgarráð Reykjavíkur hefur samþykkt fyrirætlanir byggingafyrirtækisins Mannverks um uppbyggingu á þessu svæði. Sjálfu sendiráðshúsinu verður skipt upp í tvö hús og nokkrar viðbyggingar verða rifnar. Þá verður einbýlishús við Þingholtsstræti 34 endurgert og nýtt hús í gömlum stíl byggt við hlið þess. Byggingarmagn á reitnum verður tæplega 1.400 fermetrar og þar af eru 200 fermetrar til viðbótar við það sem nú er þar. Við það eykst nýtingarhlutfall lóðar úr 1,33 í 1,50. Sem kunnugt er var sendiráð Bandaríkjanna við Laufásveg fram til ársins 2020. Við Laufásveg 21 og 23 stóðu upphaflega tvö stakstæð íbúðarhús, byggð 1941 og hönnuð af Gísla Halldórssyni og Sigvalda Thordarsyni. Hér sést lóð bandaríska sendiráðsins að ofan, vel afgirt. Þrír kálfar sem standa út með rauðu þaki verða rifnir. Til hægri sést Þingholtsstræti 34 og við hlið þess verður nýtt hús byggt. Garðrými verða endurhönnuð. Eftir að húsin voru keypt undir sendiráðið voru þau tengd saman og í áranna rás var byggt við þau eftir þörfum. Þá hönnun annaðist embætti húsameistara ríkisins að mestu, að því er kemur fram í gögnum tillögu Mannverks. Lóðirnar Laufásvegur 21-23 og Þingholtsstræti 34 voru sameinaðar 2002 og sama ár voru húsin tengd saman með lokaðri tengibyggingu. Götumynd Laufásvegar mun taka töluverðum breytingum því til stendur að rífa millibyggingu sem um árabil hefur tengt húsin númer 21 og 23. Þá verða ýmsar tengi- og aukabyggingar baka til rifnar. Húsin við Laufásveg verða hækkuð um eina hæð og þar er stefnt að fjölbreyttri samsetningu íbúða af ólíkum stærðum og gerðum. Í báðum húsum verða sérhæðir með lyftuhúsum, fjórar íbúðir í hvoru. Frétt af mbl.is Kæru vegna Laufásvegar vísað frá Við Þingholtsstræti 34 verður einbýlishúsið endurbyggt í samráði við Minjastofnun, en stofnunin fagnar í umsögn sinni þeim áformum, enda eigi að vanda til verka og klæðningar, gluggar og annar frágangur verði endurnýjuð í samræmi við upphaflega gerð. Húsið að Þingholtsstræti 34 er friðað vegna aldurs, en það er forskalað timburhús á steyptum sökkli. Húsið er byggt í kringum 1900 eftir teikningum Péturs Jóhannessonar húsameistara. Til vinstri má sjá hvernig svæðið lítur út í dag. Til hægri sést hvernig bygging sem tengdi Laufásveg 21 og 23 verður rifin og sama gildir um þrjár viðbyggingar baka til. Þingholtsstræti 34 og 36 fyrir ofan Teikning/Mannverk Til stendur að hækka ris hússins og þá er heimilt að rífa bíslag norðan- og sunnanmegin við það. Við hlið hússins í Þingholtsstræti verður reist nýtt hús á lóð númer 36. Það verður í stíl við önnur hús í kring með kjallara, hæð og rishæð. Heimilt er að hafa sex íbúðir í húsinu. Frétt af mbl.is Athugasemdir við búsetuúrræði Frétt af mbl.is Sendiráð Bandaríkjanna selur Laufásveginn Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Drónaárás á flugvellinum í Dubai Arsenal fyrsta lið sögunnar Rafmagnslaust í Laugardal og nágrenni Skrifa söguna í hverri viku Gamla sendiráðið breytist mikið Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Aldrei gerst að dögum sé bætt við Telja auglýsingu vera löglega Einn dalur verðmætari en hundrað Íslenska mest töff tungumál í heimi Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Andlát: Özur Lárusson Telja auglýsingu vera löglega Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Kristinn Jón felldi Alexöndru Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason Nýjast á mbl.is » Myndskeið: Drónaárás á flugvellinum í Dubai Arsenal fyrsta lið sögunnar Rafmagnslaust í Laugardal og nágrenni Skrifa söguna í hverri viku Gamla sendiráðið breytist mikið Umræðan Sópa, sópa, sópa Framsókn treystir þjóðinni Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Uppgjöf í viðureigninni við verðbólgu og vexti Íslenska mest töff tungumál í heimi Telja auglýsingu vera löglega Með kíló af kókaíni falið í niðursuðudósum Mest lesið Í gær Í vikunni Hávær þruma glumdi yfir höfuðborginni Lúðvík orðinn 108 ára í mannsárum Andlát: Özur Lárusson Telja auglýsingu vera löglega Sjálfstæðisflokkurinn mælist langstærstur Gul veðurviðvörun fyrir stærstan hluta landsins Beðið eftir rekstrarleyfi landlæknis Ætlaði að aðstoða en hafnaði á milli bíla Kristinn Jón felldi Alexöndru Viðræður hafa legið niðri í þrettán ár Andlát: Árni Árnason Lýsa eftir Marijus: Handtökuskipun í gildi Aldrei gerst að dögum sé bætt við Andlát: Eysteinn Helgason „Ég er ekki Jóhanna Sigurðardóttir“ „Allt sem hún sagði þarna er satt og rétt“ Gul viðvörun vegna hríðar og hvassviðris Tölvupósturinn var ekki mistök Ætlaði að aðstoða á slysstað en lenti á milli bíla Veðurstofan varar við tíðum eldingum Davíð Oddsson ritstjóri og fyrrverandi forsætisráðherra látinn Afsalaði sér lögræðinu á afmælisdaginn Foreldrar Sólons höfða mál gegn Icelandair „Ég vil vara þig við, þetta er ógeðslegt“ RÚV segir upp samningi við Sýn Gauti er eitt barnanna sem lifðu af 69 sagt upp í tveimur hópuppsögnum Koma bara ef þeir fá læknishjálp Frestað aftur í dag eftir fjögurra ára bið Andlát: Árni Árnason

Share this article