Innlent | Morgunblaðið | 19.2.2026 | 18:30 Íbúar verða senn 2.000 Fjöldi bygginga hefur verið reistur í byggðarlaginu á síðustu árum. Fremst hér eru fjölbýlishús við götuna Keilisholt. Önnur uppbyggingarsvæði eru t.d. Grænaborg sem er nær sjónum og norðar miðað við þessa mynd. mbl.is/Sigurður Bogi Vænst er að á allra næstu dögum nái fjöldi íbúa í Sveitarfélaginu Vogum 2.000 manns. Í gær, miðvikudag, stóð talan í 1.988 og hefur hækkað hratt á síðustu misserum. „Að ná tveimur þúsundum verða heilmikil tímamót. Við vöktum tölurnar og einhver dagamunur verður gerður þegar nýju þúsundi er náð,“ segir Guðrún P. Ólafsdóttir bæjarstjóri í samtali við Morgunblaðið. Snemma árs 2023 voru Vogabúar um 1.400 og hafði þá fjölgað talsvert síðustu misserin þar á undan. Byggingarverktakar höfðu þá séð tækifæri á svæðinu og voru þá meðal annars að reisa þar fjölbýlishús. Íbúðir voru margar tilbúnar þegar Grindavík var rýmd í nóvember 2023. Fólk þaðan úr bæ hefur í talsverðum mæli sett sig niður í Vogum, þó að samsetning og bakgrunnur nýrra Vogabúa sé mun fjölbreyttari. Talsvert er til dæmis um að fólk af höfuðborgarsvæðinu hafi sett sig þarna niður til þess að njóta friðsæls umhverfis í tiltölulega fámennri byggð. Guðrún P. Ólafsdóttir „Fjölgun íbúa, um 700 manns á þremur árum, er talsverð og hefur reynt á innviði sveitarfélagsins. Okkur hefur þó tekist að halda í við þróunina með því að bæta þjónustu og styrkja stjórnsýslu,“ segir Guðrún bæjarstjóri. Almennt segir hún að Vogar hafi verið vel í stakk búnir að mæta snarpri fjölgun íbúa. Rekstrarhæfi sveitarfélagsins hafi styrkst svo og tekjustraumar þess sömuleiðis. Á móti komi að svara þurfi nýjum áskorunum og nú sé verið að undirbúa stækkun bæði leik- og grunnskóla. Talan 500 flýgur fyrir „Hér var húsnæði á lausu og staðurinn er miðsvæðis frá okkar bæjardyrum séð. Að setjast hér að kom því nánast af sjálfu sér,“ segir Bogi Adolfsson. Þau Bogi, Snædís Ósk Guðjónsdóttir og börn þeirra tvö eru meðal þeirra tæplega 4.000 íbúa í Grindavík sem þurftu að yfirgefa heimabæ sinn 10. nóvember 2023 vegna aðsteðjandi hættu. Margt af því fólki hefur skapað sér framtíð í Vogum. Bogi Adolfsson mbl.is/Sigurður Bogi „Hve margir Grindvíkingar eru í Vogunum fylgir ekki neinu bókhaldi en talan 500 manns hefur flogið fyrir. Við fjölskyldan unum okkur hér vel; sjálfur vinn ég í Reykjanesbæ en held tengslunum við Grindavík með félagsstörfum,“ segir Bogi, þekktur sem formaður í björgunarsveitinni Þorbirninum í Grindavík. Sú er áfram starfandi enda þótt verkefni hennar séu önnur og breytt frá því sem var. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Innskráning Gleymt lykilorð? Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Sagði að skotið hefði verið á sig Íbúar verða senn 2.000 Haukar – FH kl. 19.30, bein lýsing Tvær líkamsárásir og maður með hníf í Hlíðunum Ráðuneytið látið vita af handtökunni Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Hæddist að Dönum og Grænlendingum á hitafundi „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ Friðarviðræður í Genf: „Hvað vilja þeir?“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Samfylkingin ekki lengur stærst Þorsteinn Pétur sýknaður Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja „Maður heldur að svona gerist ekki“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Umferðarslys við Rauðavatn í nótt „Það var bara allt á floti“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum Sagði að skotið hefði verið á sig Íbúar verða senn 2.000 Haukar – FH kl. 19.30, bein lýsing Tvær líkamsárásir og maður með hníf í Hlíðunum Ráðuneytið látið vita af handtökunni Bjartari tímar fram undan Vítahringur skuldsetningar ógnar Félagsbústöðum Fleira áhugavert Veita undanþágur vegna líkbrennslu Gæti snjóað lítillega á höfuðborgarsvæðinu Piparúða beitt gegn ungum dreng Dæmdur í tíu ára fangelsi: „Þessu lýkur ekkert hérna“ „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Starfsmaður grunaður um að hafa stolið mat Samfylkingin ekki lengur stærst Þorsteinn Pétur sýknaður Sjúkraflugvél kemst ekki til Eyja „Maður heldur að svona gerist ekki“ Piparúða beitt gegn ungum dreng Stórhættuleg gatnamót við vissar aðstæður Umferðarslys við Rauðavatn í nótt „Það var bara allt á floti“ Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Fjórir Íslendingar óskað aðstoðar eða ráðgjafar Vill Kristrúnu fyrir dóm Rúta hafnaði utan vegar og valt: Sjö fluttir á heilsugæslu Fylgdu GPS út í vitleysu án símasambands Ólafur Ragnar kveðst óttast Ísland tekur þátt í fyrsta sinn á þessari öld Samfylkingin ekki lengur stærst Gular viðvaranir vegna norðaustan hríðar Í mótsögn við sjálfa sig: „Nei, bara alls ekki“ Íslendingar hvattir til að huga að heimför Yfirtökuhætta hjá Icelandair? Skuldaði 2,5 milljarða við yfirtökuna Beint: Framsókn kýs nýja forystu „Dóttir þín lifir ekki lengur“ Fær rúmar 45 milljónir í vasann Ræddu við ökumann og gruna hann um samflot Lögreglumaður ákærður: Varðar allt að 3 ára fangelsi Dregur framboð sitt til baka Telur skólann vera að bregðast syni sínum