Sía fréttalista Sía eftir dagsetningu dd . mm . áááá – dd . mm . áááá Innlent Erlent Menning og dægurmál Íþróttir Fyrir 35 mínútumINNLENDAR FRÉTTIR Mosfellsbær Eldur í kartöfluskúr í Skammadal Brynja Dögg Friðriksdóttir RÚV / Hólmfríður Dagný Friðjónsdóttir Slökkvilið höfuðborgarsvæðisins var kallað út á tíunda tímanum í kvöld vegna elds í kartöfluskúr í Skammadal, í Mosfellsdal. Einn dælubíll var sendur á vettvang. Kofinn var alelda þegar slökkvilið kom á vettvang samkvæmt varðstjóra í aðgerðarstjórn hjá Slökkviliði höfuðborgarsvæðisins. Slökkvistarf gekk greiðlega og ekki var hætta á að eldur bærist út í nærliggjandi kofa. Kartöfluskúrinn brann til grunna en eldsupptök eru ókunn. Fyrir 10 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Fyrrum utanríkisráðherra lést af völdum áverka Brynja Dögg Friðriksdóttir Kamal Kharazi, fyrrum utanríkisráðherra Írans. EPA / Ballesteros Fyrrum utanríkisráðherra Írans, Kamal Kharazi, lést í gær af völdum áverka sem hann hlaut í árásum Bandaríkjanna og Ísraels á Íran 1. apríl síðastliðinn. Ríkisfjölmiðill í Íran greindi frá andláti hans. Kharazi var 81 árs og var yfirmaður alþjóðasamskiptaráðs sem tilheyrir íranska utanríkisráðuneytinu. Þar áður var hann sendifulltrúi hjá Sameinuðu þjóðunum í New York og utanríkisráðherra Írans frá árunum 1997–2005 í ríkisstjórn Mohammads Khatami. Eiginkona Kharazi lést í árásinni sem var gerð á heimili þeirra í Teheran. Fyrir 15 mínútumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Trump skaða trúverðugleika NATO meira en Pútín hefur gert Bandaríkjaforseti gagnrýnir NATO og aðildarríki þess harðlega fyrir að koma Bandaríkjunum ekki til hjálpar í stríðinu við Íran. Tékklandsforseti segir hann hafa skaðað bandalagið meira á nokkrum vikum en Rússlandsforseta tókst á mörgum árum. Fyrir 1 tímaINNLENDAR FRÉTTIR Dómstólar Játaði að hafa beitt stjúpdóttur sína ítrekuðu kynferðisofbeldi Maður sem dæmdur var í 13 ára fangelsi fyrir gróf kynferðisbrot gegn barnungri stjúpdóttur sinni gekkst við 13 ákæruliðum. Honum er gert að greiða stúlkunni 6 milljarða í miskabætur. Hann hafði áður verið dæmdur fyrir ofbeldi gegn móður stúlkunnar. Fyrir 2 tímumERLENDAR FRÉTTIR Bandaríkin „Ég er ekki fórnalamb Epstein“ Forsetafrú Bandaríkjanna þvertekur fyrir tengsl við barnaníðinginn Jeffrey Epstein. Hún kallar eftir því að fórnarlömb hans fái áheyrn í Bandaríkjaþingi, en segist ekki vera á meðal þeirra. Sögusögnum um annað verði að linna. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Samfélag „Það hefur hjálpað mér í gegnum sorgina að syngja” Heiðurstónleikar Kristjáns Jóhannssonar til styrktar Bryndísarhlíð voru haldnir í kvöld. Á tónleikunum sungu tíu tenórar saman, þar á meðal faðir Bryndísar Klöru. Hann segir sönginn hjálpa í sorginni. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Körfubolti Grindavík í undanúrslit og KR komst yfir gegn Keflavík Grindavík er komið í undanúrslit Íslandsmóts kvenna í körfubolta eftir sigur á Val í kvöld. KR er svo skrefi nær sæti í undanúrslitum eftir að hafa unnið Keflavík í kvöld í þriðja leik liðanna. Fyrir 3 tímumÍÞRÓTTIR Íshokkí Íshokkílandslið Íslands í góðum málum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Ísland hefur spilað vel í Búlgaríu. ÍHÍ Íslenska karlalandsliðið í íshokkí hefur farið vel af stað í B-riðli 2. deildar HM í íshokkí í Búlgaríu. Ísland sigraði Kirgistan í dag 6-3 en hafði áður unnið 6-5 sigur á Tapei og Ný-Sjálendinga 6-2. Ísland er á toppi riðilsins með 9 stig en Búlgaría er í 2. sæti með 8 stig. Ísland og Búlgaría mætast einmitt í næsta leik sem er á laugardag og Ísrael svo í lokaleik sínum á sunnudag. Alla jafna færi efsta sætið upp í A-riðil 2. deildar, en þar sem A-riðlinum var aflýst vegna stríðsins í Íran fer ekkert lið upp ú B-riðlinum. Leika átti A-riðilinn í Sameinuðu arabísku furstadæmunum. Fyrir 3 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Bó söng Vetrarsól inn í hjarta Höllu Forseti Íslands minnist Björgvins Halldórssonar. Hún sendir fjölskyldu og vinum söngvarans sem lést í morgun einlægar samúðarkveðjur. Hún segir Bó hafa sungið Vetrarsól inn í hjarta sitt. Fyrir 3 tímumMENNING OG DÆGURMÁL Klassísk tónlist Hinn eini sanni Björgvin Ólafur Páll Gunnarsson tók saman umfjöllun um Björgvin Halldórsson látinn. Hér talar Björgvin sjálfur um upphafið og framtíðina. Brotin eru úr ýmsum Rokklandsþáttum. Fyrir 4 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Valur einum sigri frá sæti í úrslitum Þorkell Gunnar Sigurbjörnsson Arnór Snær Óskarsson og félagar í Val eru einum sigri frá því að komast í úrslit Íslandsmótsins í handbolta. Rúv / Mummi Lú Valsmenn eru nú aðeins einum sigri frá því sæti í úrslitum Íslandsmóts karla í handbolta eftir sigur á KA, 33-30 í öðrum leik liðanna í undanúrslitum. Valur leiðir nú einvígið 2-0, en vinna þarf þrjá leiki til að komast í úrslit. Valur spilaði til úrslita í fyrra en tapaði þá úrslitaeinvíginu fyrir Fram 3-0. Þriðji leikur Vals og KA verður spilaður á mánudaginn klukkan 19:00. Annar leikur FH og Hauka í hinni undanúrslitaviðureigninni verður annað kvöld á Ásvöllum en FH er 1-0 yfir þar. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Fjarskipti 4000 símtöl borist til að athuga hvort síminn virki Sviðstjóri innviðasviðs hjá Fjarskiptastofu segir lokanir á 3G farsímakerfinu ganga vel. Lokaáfangi lokana á höfuðborgarsvæðinu og á Reykjanesi hófst í gær. 4000 hafa hringt í símsvara sem athugar hvort símar virki eftir lokanir. Fyrir 4 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Andlát Söng sig inn í hjarta þjóðarinnar og var vinur vina sinna Björgvins Halldórssonar var minnst í dag en hann var bráðkvaddur í morgun 74 ára að aldri. Hann var einn ástsælasti tónlistarmaður þjóðarinnar á hátt í sextíu ára ferli. Fyrir 5 tímumÍÞRÓTTIR Handbolti Svartfellingar gerðu sitt og Ísland spilar úrslitaleik á sunnudag Ísland mun spila úrslitaleik við Portúgal á sunnudag um sæti í lokakeppni Evrópumóts kvennalandsliða í handbolta. Þetta varð ljóst þegar Svartfjallaland vann Portúgal í riðli Íslands í kvöld. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Ungverjaland Afdrifaríkar kosningar framundan í Ungverjalandi Óháðar kannanir benda til þess að flokkur Viktors Orban forsætisráðherra Ungverjalands missi meirihlutann í kosningunum í Ungverjalandi. Kosningabaráttan er afar hörð. Fyrir 5 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Heilbrigðismál Foreldrar þurfi að passa hvernig er talað um mat og holdarfar í kringum unglinga Aukið aðgengi að þjónustu vantar fyrir einstaklinga með átraskanir á fyrri stigum veikinda að sögn teymisstjóra átröskunarteymis BUGL. Oft séu sjúklingar orðnir mjög veikir þegar þeir leita eftir þjónustu. Fyrir 5 tímumERLENDAR FRÉTTIR Atlantshafsbandalagið Segir Evrópu hafa veitt Bandaríkjunum margvíslegan stuðning Framkvæmdastjóri NATO segir Evrópuþjóðir hafa nánast án undantekninga gert allt sem Bandaríkin hafi beðið um í tengslum við stríðið í Íran. Forseti Bandaríkjanna hótaði að draga landið út úr bandalaginu. Fyrir 6 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Yfir 300 drepin í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Að minnsta kosti 303 voru drepnir og 1150 særðust í loftárásum Ísraelshers á Líbanon í gær, samkvæmt heilbrigðisráðuneyti Líbanons. Það segir að enn fleiri gætu fundist látnir í rústum húsa sem urðu fyrir loftárásum. Leitar- og björgunaraðgerðir standi enn yfir. Stjórnvöld í Ísrael samþykktu að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Aðalmarkmið þeirra væru afvopnun Hezbolla-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli ríkjanna. Björgunarsveitir leita í rústum húsa í Líbanon eftir loftárásir Ísraela síðustu daga. Björgunarsveitarmaður setur hrúgu af peningum í plastpoka sem öryggisvörður heldur á. Peningarnir fundust í húsarústum eftir loftárásir Ísraelshers. AP / Hussein Malla Fyrir 6 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Landsbyggðin Rúmlega tvær milljónir á einu ári í ferðakostnað vegna kappleikja barnanna Umsóknir í ferðasjóð ÍSÍ eru rúmlega fimm sinnum meiri en er til úthlutunar úr sjóðnum. Faðir þriggja íþróttadrengja á Egilsstöðum greiddi yfir 2 milljónir króna á síðasta ári í ferðakostnað vegna keppna í Reykjavík. Fyrir 7 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Náttúruvá Hefði þurft viðamikla rýmingu án varnarvirkja Fjölmörg snjóflóð féllu í grennd við byggð í tveimur hrinum á norðanverðum Tröllaskaga og Vestfjörðum í mars. Ofanflóðasérfræðingur segir að grípa hefði þurft til rýmingar á Patreksfirði og Siglufirði ef ofanflóðavarnir hefðu ekki verið til staðar. Fyrir 7 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Beinar samningaviðræður við Líbanon Stjórnvöld í Ísrael ætla að hefja beinar samningaviðræður við stjórnvöld í Líbanon. Aðalmarkmið viðræðnanna er afvopnun Hezbollah-samtakanna og að koma á friðarsambandi milli ríkjanna. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Sveitarstjórnarkosningar 2026 Skafti fyrsti oddviti Miðflokksins á Seltjarnarnesi Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Tónlist Stebbi Jak hættur í Dimmu og segir vini hafa brugðist sér Stefán Jakobsson, aðalsöngvari hljómsveitarinnar Dimmu, hefur sagt skilið við hljómsveitina eftir 15 ára starf. Hann segir bassaleikara hljómsveitarinnar hafa brugðist sér, en Stefán var sýknaður af ákæru um líkamsárás í gær. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Kjaramál Verkfalli farmanna aflýst í bili Sjómannafélag Íslands hefur aflýst verkfalli farmanna. Málið er komið á borð ríkissáttasemjara. Eimskipafélagið sagði framkvæmdina ólöglega. Fyrir 8 tímumINNLENDAR FRÉTTIR Efnahagsmál Boðar tímabundnar aðgerðir gegn verðbólgu Forsætisráðherra segir aðgerðirnar ekki koma í staðinn fyrir umbætur til lengri tíma en að stundum þurfi að „taka í bremsuna“ til að hemja verðhækkanir. Hún ætlar líka að efna til þríhliða samtals stjórnvalda, ASÍ og SA til að vinna á verðbólgu. Fyrir 8 tímumERLENDAR FRÉTTIR Stríð í Mið-Austurlöndum Skipuðu íbúum í Beirút að flýja heimili sín Ingibjörg Sara Guðmundsdóttir Ísraelsher skipaði íbúum í suðurhluta Beirút, höfuðborgar Líbanons, að flýja heimili sín síðdegis þar sem frekari loftárásir væru yfirvofandi. Talsmaður Ísraelshers sagði á samfélagsmiðlinum X að herinn héldi áfram hernaðaraðgerðum og loftárásum á innviði H