Security News

Cybersecurity news aggregator

LOW News RÚV

Japanar losa aftur neyðarbirgðir af olíu

  • What: Japan releases emergency oil reserves to combat rising prices
  • Impact: Government takes action to stabilize fuel costs
Read Full Article →

Sanae Takaichi forsætisráðherra Japan.EPA / Kimimasa Mayama Japanar ætla að losa neyðarbirgðir af olíu og setja í umferð í byrjun maí. Forsætisráðherra Japan, Sanae Takaichi, tilkynnti um þessa ákvörðun í dag. Magnið jafnast á við 20 daga notkun af hráolíu. Þetta er í annað sinn sem stjórnvöld nýta olíubirgðir landsins, en í mars var olía sett í umferð sem jafngildir 15 daga notkun. Um 95% af allri innfluttri olíu Japana kemur frá Mið-Austurlöndum. Hækkandi olíuverð hefur haft mikil áhrif í Japan og því ákváðu stjórnvöld að losa um olíubirgðirnar til að stemma stigu við verðhækkunum.

Share this article