Það verður ekki tekið af áhugamönnum um áframhaldandi aðlögunarviðræður Íslands að Evrópusambandinu að þá skortir ekki frumleika þegar kemur að því að færa rök fyrir sínu máli. Til að byrja með voru veigamestu rökin fyrir aðild verðlagning kaffibolla í Búdapest, en þau voru sett fram af Snærósu Sindradóttur, framkvæmdastjóra Evrópuhreyfingarinnar. Nú hefur móðir hennar trompað dóttur sína. Sterkustu rökin sem nú hafa komið fram fyrir aðild Íslands eru að einungis með því sé hægt að tryggja að Helga Vala Helgadóttir, fyrrverandi alþingismaður, geti greitt námslánin sín. Helga Vala kvartar yfir því á samfélagsmiðlum að hún hafi greitt sex milljónir af námsláni sem upphaflega nam 11 milljónum, en samt sem áður sé lánið ekki uppgreitt. Helga tekur ekki heldur fram að vextirnir af láninu séu talsvert lægri en markaðsvextir og því niðurgreiddir af skattborgurum þessa lands. Þetta styður þá kenningu hrafnanna að það sem sameinar stuðningsmenn aðildar Íslands að Evrópusambandinu sé að þeir kunni ekki að núvirða. Huginn og Muninn er einn af föstum ritstjórnardálkum Viðskiptablaðsins. Þessi pistill fyrst í blaðinu sem kom út 8. apríl 2026.