Týr hefur áður bent á það að ríkisstjórn Kristrúnar Frostadóttur virðist fyrst og fremst sækja sér innblástur til ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir. Það er alltaf sama lausnin við öllum vandamálum: að hækka skatta og auka ríkissútgjöld. Kristrún Frostadóttir tilkynnti hofmóðug í ræðu sinni á ársfundi Seðlabankans í gær að atvinnustefna Íslands yrði kynnt rétt fyrir hádegi í dag. Í ræðunni sagði Kristrún: Ríkisstjórnin hefur nú samþykkt fyrstu atvinnustefnu Íslands: 10 ára vaxtarplan sem lýsir því hvernig stjórnvöld vinna með atvinnulífi og samfélagi að verðmætasköpun í landinu. Það er rétt hjá Kristrúnu. Þetta er fyrsta atvinnustefna Íslands. Það er að segja allar götur frá því að Dagur B. Eggertsson, stuðningsfulltrúi Samfylkingarinnar á Alþingi, leiddi gerð atvinnustefnu ríkisstjórnar Jóhönnu Sigurðardóttir árið 2010. © Haraldur Guðjónsson (VB MYND/hag) Eina og allir vita olli sú atvinnustefna miklum straumhvörfum í íslensku samfélagi...eða kannski ekki. Týr langar til að rifja upp ágætan leiðara sem Davíð heitinn Oddssson skrifaði í Morgunblaðið að tilefni af sóknaráætlun þeirra Jóhönnu og Dags, sem átti að vera til 10 ára. Ein af þeim leiðum sem hægt er að fara við að fela úrræðaleysi er að skipa nefndir og vinnuhópa til að marka stefnu og gera áætlanir. Á Alþingi var í gær rædd tillaga til þingsályktunar um sóknaráætlun til eflingar atvinnulífi og samfélagi um allt land. Ein af þeim leiðum sem hægt er að fara við að fela úrræðaleysi er að skipa nefndir og vinnuhópa til að marka stefnu og gera áætlanir. Á Alþingi var í gær rædd tillaga til þingsályktunar um sóknaráætlun til eflingar atvinnulífi og samfélagi um allt land. Ályktunin gengur í skemmstu máli út á að fela ríkisstjórninni að undirbúa sóknaráætlun sem hafi það að markmiði að Ísland verði í fararbroddi í verðmætasköpun, menntun, velferð og lífsgæðum. Ekki skal gert lítið úr markmiði sóknaráætlunarinnar, um það geta allir sameinast. Allir vilja að Ísland verði í fararbroddi þegar kemur að lífsgæðum og öðru því sem jákvætt getur talist. Vandinn er hins vegar sá að núverandi stjórnvöld eru afskaplega ótrúverðug þegar kemur að því að leggja línur um slíka sóknaráætlun. Hver sem er getur sett á blað almennar yfirlýsingar um að heildstæð sýn og sameiginleg markmið tryggi markvissari og öflugri áætlanagerð, svo vitnað sé til þingsályktunartillögunnar. Það er lítill vandi að setja á blað áform þess efnis að samþætta opinberar áætlanir sem miði að því að efla atvinnu, menntun og endurskipulagningu opinberrar þjónustu í því skyni að stuðla að betri nýtingu fjármuna og öflugu samstarfi stjórnsýslustiga og stofnana, þvert á ráðuneyti. Allt lætur þetta ágætlega í eyrum. Ríkisstjórnin situr hins vegar uppi með það að hafa í verki gengið þvert á margt það helsta sem tínt er til í sóknaráætluninni. Þess vegna er tæpast hægt að binda miklar vonir við góð orð og fögur fyrirheit. Í sóknaráætluninni er til að mynda lögð áhersla á að vinna gegn atvinnuleysi. Vandinn er þó sá að ríkisstjórnin hefur frá því hún tók við fyrir rúmu ári ítrekað staðið í vegi fyrir atvinnuuppbyggingu. Í sóknaráætluninni er einnig rætt um að endurskipuleggja opinbera þjónustu til að nýta fjármuni betur. Þessa sést ekki stað í verki þrátt fyrir að ríkisstjórnin hafi nú haft drjúgan tíma til að sýna í það minnsta viðleitni í þessa átt. Þvert á móti gafst ríkisstjórnin strax upp á því að hagræða hjá sér og hefur staðið alfarið gegn hugmyndum um breytingar sem fela í sér hagræðingu í útgjaldaþyngstu málaflokkunum. Stefnumörkun er nauðsynleg og áætlanir, nefndir og vinnuhópar geta verið það einnig. Frumforsenda fyrir því að slíkt skili einhverju er þó að hugur fylgi máli. Vinna við sóknaráætlun ríkisstjórnarinnar tekur drjúgan tíma og kostar töluverða fjármuni, bæði úr ríkissjóði og sjóðum annarra aðila. Þegar ráðist er í slík útgjöld er lágmarkskrafa að raunverulegur vilji standi til þess að ná árangri. Að öðrum kosti er fjármununum betur varið með öðrum hætti. Þar er af nógu að taka. Týr fær ekki betur séð en að þessi orð Davíðs eigi enn þá við og munu jafnframt gilda áfram eftir að froðudiskóinu, að hætti Dags Eggertssonar, í hádeginu lýkur. Sjá einnig Mun Evrópusambandið eyðileggja feril Kristrúnar?