Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Erlendum farþegum fjölgaði um 1,6% í mars

Read Full Article →

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu um 155 þúsund í nýliðnum mars samkvæmt mælingum Ferðamálastofu , sem er 1,6% aukning frá mars 2025. Á fyrstu þremur mánuðum ársins fóru um 422 þúsund erlendir farþegar frá Íslandi. Um er að ræða 0,3% færri brottfarir en á fyrsta ársfjórðungi 2025. Um 44 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í mars, sem samsvarar ríflega fjórðungi allra brottfara. Það er 18% aukning frá sama mánuði í fyrra. Bretar voru næst fjölmennastir, um 22 þúsund talsins (14,3% af heild), sem er 31,8% fjölgun frá fyrra ári. Kínverjar voru þriðja fjölmennasta þjóðernið með um 10 þúsund brottfarir (6,3% af heild), 7,5% fleiri en í mars í fyrra. Brottfarir Íslendinga voru um 56 þúsund í mars, 3,6% færri en í sama mánuði árið áður. Frá áramótum hafa Íslendingar farið um 136 þúsund utanlandsferðir, sem er 7,1% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra.

Share this article