Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Utan­lands­ferðum Ís­lendinga fækkað um 15% í ár

Read Full Article →

Brottfarir erlendra farþega frá landinu um Keflavíkurflugvöll námu um 149 þúsund í nýliðnum apríl samkvæmt mælingum Ferðamálastofu og 0,2% færra en í sama mánuði í fyrra. Á fyrstu fjórum mánuðum ársins hafa um 571 þúsund erlendir farþegar farið frá Íslandi, álíka margir og á sama tíma í fyrra, að því er segir í frétt á vef Ferðamálastofu. Brottfarir Íslendinga voru um 53.500 í apríl, 31,3% færri en í sama mánuði árið áður. Frá áramótum hafa Íslendingar farið um 189 þúsund utanlandsferðir, sem er 15,5% fækkun miðað við sama tímabil í fyrra. Þess ber að geta að páskar voru tveimur vikum fyrr á ferðinni í ár heldur en í fyrra. Sjálfur páskadagur var 5. apríl í ár en 20. apríl í fyrra. Þá má gera ráð fyrir að fall Play liti samanburð á tölum um brottfarir Íslendinga. Bandaríkjamenn og Bretar voru samanlagt 41,8% allra brottfara erlendra farþega. Um 38 þúsund Bandaríkjamenn fóru frá landinu í apríl, sem samsvarar um fjórðungi allra brottfara erlendra farþega og fjölgaði þeim um 11% frá sama mánuði í fyrra. Bretar voru næst fjölmennastir, um 24 þúsund talsins (16,4% af heild), sem er 23,2% fjölgun frá fyrra ári. Kínverjar voru þriðja fjölmennasta þjóðernið með um 8 þúsund brottfarir (5,6% af heild), 2,8% færri en í apríl í fyrra.

Share this article