Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Styrkir Neytendasamtökin um 25 milljónir

Read Full Article →

Ragnar Þór Ingólfsson, félags- og húsnæðismálaráðherra, hefur ákveðið að þrefalda fjárhagsstuðning ríkissjóðs til Leigjandaaðstoðar Neytendasamtakanna milli ára. Félags- og húsnæðismálaráðuneytið hefur tilkynnt um 25 milljóna króna styrkst til Neytendasamtakanna vegna Leigjendaaðstoðarinnar. „Það er lykilatriði að leigjendur standi ekki einir þegar á reynir. Með þessum aukna stuðningi erum við að styrkja þjónustu sem nýtist heimilum um land allt. Jafnframt skiptir máli að leigusalar þekki skyldur sínar og hafi aðgang að ráðgjöf og stuðningi,“ segir Ragnar Þór Ingólfsson , félags- og húsnæðismálaráðherra. Samkvæmt samkomulaginu tekur Leigjendaaðstoð Neytendasamtakanna tekur að sér að veita leigjendum og leigusölum íbúðarhúsnæðis upplýsingar um rétt þeirra og skyldur samkvæmt húsaleigulögum. Leigjendaaðstoðin veitir leigjendum einnig lögfræðiráðgjöf þegar upp kemur ágreiningur vegna leigusamninga um íbúðarhúsnæði. „Leigumarkaðurinn hefur reynst mörgum krefjandi og þörfin fyrir góða og áreiðanlega ráðgjöf er mikil. Með þessum stóraukna stuðningi getum við styrkt þjónustuna verulega og tryggt að fleiri fái þá þjónustu sem þeir þurfa,“ segir Breki Karlsson , formaður Neytendasamtakanna.

Share this article