Viðskipti | mbl | 11.4.2026 | 13:50 Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga Bergþóra Baldursdóttir hagfræðingur hjá Íslandsbanka. mbl.is/Árni Sæberg Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann Laun hér þau hæstu í Evrópu Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ljá máls á þjóðarsátt „Orð eru til alls fyrst“ » Fleiri tengdar fréttir Lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti úr 24% í 11%, mun skila sér í ríflega 10% lægra eldsneytisverði og lækka vísitölu neysluverðs um u.þ.b. 0,3% tímabundið. Þetta herma útreikningar Íslandsbanka. Frétt af mbl.is „Var kannski ekki efst á óskalistanum hjá okkur“ Skilar sér beint líkt og um áramót Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir í samtali við mbl.is að bankinn búist við að lækkunin skili sér beint, líkt og um áramótin með afnám vörugjalda. Bergþóra segir að fljótt á litið virðist tímabundnar aðgerðir ríkisstjórnarinnar að mestu vera til að ná verðbólgu niður fyrir 4,7% forsenduákvæði kjarasamninga. Það sé í það minnsta sýn greiningardeildar á þessum tímapunkti. Segir Bergþóra að vissulega geti verðbólguvæntingar eitthvað lækkað og það sé auðvitað jákvætt en þar sem aðeins um tímabundna aðgerð sé að ræða og að verðbólgan muni síðan hækka á ný um það sem þetta nemur þá finnst henni tímasetningin á lok aðgerðanna engin tilviljun. „Það er ágústmælingin sem ræður forsenduákvæðinu,“ segir hún. Spurð hvort ætlað plan ríkisstjórnarinnar til að ná verðbólgu niður fyrir forsenduákveðið komi til með að takast segir Bergþóra það velta svolítið á átökunum við Persaflóa. Það sé stærsta óvissan. „Ef ekki væri fyrir þau þá myndi ég segja já, þetta dugar.“ Frétt af mbl.is Vilhjálmur ósáttur: „Ekkert samtal né samráð“ Frekari hækkanir væntanlegar Ekki má gleyma því að mati Bergþóru að þótt þessi lækkun verði mun eldsneyti líklega samt sem áður hækka í verði áfram, vonandi í minni mæli þó. Svo sé líklegt að flutningskostnaður hækki og tímaspursmál hvenær meiri verðbólga verði flutt inn vegna átakanna fyrir botni Miðjarðarhafs. Bergþóra veltir fyrir sér hvort frekar hefði verið hægt að semja við aðila vinnumarkaðarins með einhverjum hætti um að áhrifin af stríðinu yrðu tekin út fyrir sviga. Á jákvæðum nótum bendir hún á að við séum lánsöm á Íslandi hvað það varðar að vera í betri stöðu en mörg lönd í kringum okkur sem sjá fram á hækkun á rafmagni, húshitun og svo framvegis. Hins vegar bendir hún á að frekari hækkanir séu líklegar á öðrum vörum eins og á flugverði og flutningskostnaði og þar af leiðandi matvöru og öðrum nauðsynjavörum. Mörg fyrirtæki séu í þeirri stöðu að verða að hækka verð þegar flutningskostnaður eykst eða flytja inn vörur sem hækka í innkaupum erlendis frá. Þannig segir hún gott að standa fast á því að söluaðilar skili verðlækkunum að fullu til neytenda og vísar þar til aðgerðar stjórnvalda um að verðlag verði vaktað í landinu með vöktun á vegum Samkeppniseftirlitsins og verðlagseftirlits ASÍ. „Heildarmyndin er kannski að aðgerðirnar eru skiljanlegar og við teljum þær helst vera útfærðar til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga og hvort planið heppnist veltur svolítið á átökunum við Persaflóa.“ Frétt af mbl.is Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Loks viðurkennir forsætisráðherra vandann Laun hér þau hæstu í Evrópu Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Ljá máls á þjóðarsátt „Orð eru til alls fyrst“ » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Styrkir samtökin um 25 milljónir Kostnaður við endurreisn óljós Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Laun hér þau hæstu í Evrópu Borga 137 milljónir til ferðamanna 75% Íslendinga vilja nýja staði Laufey og Sigfríð til Novum 78% landsmanna fóru til útlanda Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Borga 137 milljónir til ferðamanna Laun hér þau hæstu í Evrópu 78% landsmanna fóru til útlanda Laufey og Sigfríð til Novum Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Origo kaupir Maven Prís tekur nú við peningum Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Laun hér þau hæstu í Evrópu Prís tekur nú við peningum Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður Pistlar » Sigurður Már Jónsson Dauðarefsingar í Miðausturlöndum Sigurður Már Jónsson Sekt, sagnfræði og þrælasala Fleira áhugavert Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Landskjörstjórn harðorð um þjóðaratkvæðagreiðslu „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Laun hér þau hæstu í Evrópu Borga 137 milljónir til ferðamanna 75% Íslendinga vilja nýja staði Laufey og Sigfríð til Novum 78% landsmanna fóru til útlanda Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Borga 137 milljónir til ferðamanna Laun hér þau hæstu í Evrópu 78% landsmanna fóru til útlanda Laufey og Sigfríð til Novum Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Origo kaupir Maven Prís tekur nú við peningum Ráðin markaðsstjóri Slippfélagsins Ráðin forstjóri Deloitte á Íslandi Laun hér þau hæstu í Evrópu Prís tekur nú við peningum Origo kaupir Maven Hækkun húsnæðis- og vöruverðs ýtti undir verðbólgu Kristrún, Ásgeir og Bolli ávarpa ársfundinn Nú upplifum við hvert kraftaverkið á fætur öðru Terra opnar fyrir styrkumsóknir Skattarnir upp og skattstofninn niður