Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

„Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“

Read Full Article →

Viðskipti | mbl | 20.4.2026 | 11:41 „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ Bergþóra Baldursdóttir segir bankann telja að aðgerðir stjórnvalda miði að því að reyna að koma verðbólgu að 4,7% markmiði. Samsetta mynd/Aðsend Setja bókamerki Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga » Fleiri tengdar fréttir Bergþóra Baldursdóttir, hagfræðingur hjá Íslandsbanka, segir að mjótt sé á mununum um að verðbólga haldist innan þeirra marka sem kjarasamningar gera ráð fyrir, sérstaklega í ljósi hækkandi olíuverðs vegna átaka í Mið-Austurlöndum. Íslandsbanki spáir um og yfir fimm prósenta verðbólgu til næstu mánaða, sem er yfir 4,7% markmiði sem forsendur kjarasamninga byggja á. „Það er mjótt á mununum,“ segir Bergþóra, en samkvæmt spá bankans munu þessi markmið ekki nást þegar horft er til skamms tíma. Olíuverð „olía á eldinn“ Að hennar sögn munu átökin í Íran og möguleg lokun Hormússunds ekki leiða til eldsneytisskorts hér á landi til skemmri tíma, þar sem Ísland flytur olíu að stærstum hluta inn frá Evrópu og Noregi. Hins vegar hafi hækkandi olíuverð bein áhrif á verðbólgu. „Þessi hækkun á olíuverði er sannkölluð olía á eldinn þegar kemur að verðbólgunni. Þegar það er sett í samhengi við kjarasamninga og þau markmið sem þeir innihalda, þá er þetta óheppilegt,“ segir hún. Frétt af mbl.is Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Verðbólgan að mestu innlend Bergþóra leggur áherslu á að þrátt fyrir ytri áföll sé meginorsök verðbólgunnar að finna í innlendum þáttum. Samkvæmt tölum Íslandsbanka skýrir þjónustuverðbólga innanlands rúmlega 4% af 5,4% verðbólgu sem nú mælist. „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil,“ segir hún. Aðgerðir stjórnvalda skipta máli Stjórnvöld hafa gripið til aðgerða, meðal annars með lækkun virðisaukaskatts á eldsneyti sem tekur gildi 1. maí og mun gilda til 31. ágúst. Að mati Bergþóru mun það hafa áhrif en ekki leysa vandann til fulls. „Aðgerðir stjórnvalda um lækkun á skatti á olíu hjálpa klárlega til og munu draga úr hækkunum til skemmri tíma, enda teljum við að farið hafi verið í þessar aðgerðir til að koma verðbólgunni niður fyrir markmið kjarasamninga,“ segir hún. Við þetta má svo bæta að Íslandsbanki telur að aðgerðirnar leiði til lækkunar verðbólgu um 0,3% meðan á aðgerðum stendur. Frétt af mbl.is Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Óvissa um framhaldið Í hagtöluspá Íslandsbanka eru settar fram bæði jákvæðar og neikvæðar sviðsmyndir. Samkvæmt grunnspá náist verðbólgumarkmið ekki, en jákvæðari þróun gæti breytt því. „Þetta veltur svolítið á því hvenær hægt verður að sigla um Hormússund aftur,“ segir Bergþóra. Hún telur að stjórnvöld geti gripið til frekari aðgerða til skemmri tíma en bendir á að áhrif þeirra séu tímabundin. Frétt af mbl.is Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali „En svo hækkar verðbólgan aftur þegar aðgerðirnar renna út,“ segir hún og bætir við að hún telji að lykilatriði sé samvinna á vinnumarkaði. „Ég held að best væri að hefja samræður við aðila á vinnumarkaði og reyna að ná saman þar. En það má ekki gleyma því að verðbólgan er að mestu innlend og því er vandinn heimatilbúinn.“ Tengdar fréttir Vextir á Íslandi Vilhjálmur: Svo sturlað að það nær engu tali Stýrivextir sennilega hækkaðir í 8,25% á árinu Laun hækkað langt umfram getu hagkerfisins Landsbankinn spáir 5,5% verðbólgu í apríl Aðgerðir til höfuðs forsenduákvæði kjarasamninga » Fleiri tengdar fréttir Blogga um frétt Pistlar » Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Fleira áhugavert Störfum fjölgar hjá hinu opinbera „Innflutt verðbólga er í raun mjög lítil“ 300 ferðir á spítalann Segjast ekki áforma friðarviðræður við Bandaríkin Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Vonbrigði og kom á óvart Taka þarf mið af heildaráhrifum Húðvörur velta milljörðum Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Lækka verð á hundruðum vara Vonbrigði og kom á óvart Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Húðvörur velta milljörðum Taka þarf mið af heildaráhrifum Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Tekjur Dranga 40 milljarðar Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Þrír nýir eigendur að LEX Jóhann Ingi til Securitas 4,6 milljarða samningur Pistlar » Sigurður Már Jónsson Af hverju ekki frjálsar kosningar á Kúbu? Sigurður Már Jónsson Magga Stína fór aldrei til Súdan Fleira áhugavert Fá 40 milljónir króna frá Kaleo Jón komst í gegn en Trump ekki Vara við mjög stórum skjálfta Loka Hormússundi aftur Myntbreyta » ISK USD EUR GBP CAD DKK NOK SEK Mest lesið Í gær Í vikunni Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Vonbrigði og kom á óvart Taka þarf mið af heildaráhrifum Húðvörur velta milljörðum Runólfur ráðinn forstjóri Tekjur Dranga 40 milljarðar Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Lækka verð á hundruðum vara Vonbrigði og kom á óvart Hvorki Pósturinn né eftirlit farið að lögum Húðvörur velta milljörðum Taka þarf mið af heildaráhrifum Myndir: Frumkvöðlar framtíðarinnar kynntu vörurnar Áhugaverðustu úrin í Genf þetta árið 4,6 milljarða samningur Runólfur ráðinn forstjóri Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Tekjur Dranga 40 milljarðar Lækka verð á hundruðum vara Þrjótar fylgjast náið með ferðum fólks Fengu flest hækkun ef þau báðu um hana Samkeppniseftirlitið ógildir samruna Staða Íslands öfundsverð en getum gert enn betur Runólfur ráðinn forstjóri Ekki verður af samruna Arion og Kviku Þrír nýir eigendur að LEX Jóhann Ingi til Securitas 4,6 milljarða samningur

Share this article