Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Vertíð farþegaskipa hefst í næstu viku

Read Full Article →

Innlent | Morgunblaðið | 11.4.2026 | 19:20 Vertíð farþegaskipa hefst í næstu viku Sjón sem verður algeng í sumar. Glæsifleyið Costa Favolosa siglir inn í Sundahöfn í fyrrasumar. mbl.is/sisi Sigtryggur Sigtryggsson [email protected] Setja bókamerki Vertíð skemmtiferðaskipanna 2026 hefst eftir tæpa viku. Það er skipið AIDA Sol sem fær þann heiður að vera vorboðinn að þessu sinni. Skipið er væntanlegt til Reykjavíkur fimmtudaginn 16. apríl og mun leggjast að Skarfabakka klukkan 15 ef áætlanir standast. Það er skipið AIDA Sol sem fær þann heiður að vera vorboðinn að þessu sinni. Skipið er væntanlegt til Reykjavíkur fimmtudaginn 16. apríl og mun leggjast að Skarfabakka klukkan 15 ef áætlanir standast. Þetta er skip af stærri gerðinni, 71.304 brúttótonn. Það tekur 2.194 farþega og í áhöfn eru 646 manns. Skipið mun dvelja í Reykjavík í tvo daga áður en það heldur för sinni áfram til Ísafjarðar, Akureyrar og Seyðisfjarðar. Þaðan siglir skipið aftur til Þýskalands. Vertíð farþegaskipanna/skemmtiferðaskipanna hefst nokkru síðar nú en venjulega. Oftast hafa einhver skip komið hingað í marsmánuði. Í fyrra kom fyrsta skemmtiferðaskipið til Reykjavíkur 21. mars. Skipakomum fer smám saman fjölgandi þegar líður á sumarið og flestar verða þær í júlí og ágúst. Síðasta skipið er væntanlegt 18. október. „Áætlað er að það verði 1.053 skipakomur á landinu öllu í ár, sem eru 100 færri komur en við sáum í fyrra og 156 færri komur en árið 2024,“ segir Sigurður Jökull Ólafsson, framkvæmdastjóri samtakanna Cruise Iceland. Metfjöldi farþega skemmtiferðaskipa kom til Reykjavíkur í fyrrasumar; 330.474 talsins. Fyrra met var sett sumarið 2024 þegar rúmlega 322 þúsund farþegar komu með skemmtiferðaskipum/farþegaskipum til Reykjavíkur. Þessir farþegar eyða jafnvirði margra milljarða króna í Reykjavík sem og á landsbyggðinni. Stefnir í aukningu 2028 „Við erum að sjá fram á litla breytingu hvað varðar bókunartölur fyrir árið 2027 en hins vegar erum við að sjá smávægilega aukningu í bókunum fyrir árið 2028,“ bætir Sigurður Jökull við. Áætlað er að um 308 þúsund farþegar heimsæki Ísland með skemmtiferðaskipum á þessu sumri samanborið við 333 þúsund farþega sem heimsóttu Ísland í fyrra. Fyrir árið 2027 er búið að bóka skipakomur með um 276 þúsund farþegum. Sú tala gæti hækkað þegar fram í sækir. „Í heildina erum við því að horfa fram á samdrátt í ár og fyrir næsta ár, sem var fyrirséð vegna óvissu í skatta- og lagaumhverfi, en á móti kemur að við erum að sjá jákvæðan viðsnúning fyrir árið 2028,“ segir Sigurður Jökull. Í næstu viku mun fjölmennur hópur á vegum Cruise Iceland sækja SeaTrade-kaupstefnuna í Miami í Bandaríkjunum. „Þar munu allir leggjast á eitt við að byggja á því góða viðskiptasambandi við skipafélögin sem hefur myndast á undanförnum árum og áratugum. Þar munu hafnir og þjónustufyrirtæki kynna uppbyggingu og þjónustunýjungar – sem munu verða til mikilla hagsbóta fyrir skipafélögin og skipafarþega um allt land,“ segir Sigurður Jökull. Mikil tímamót verða hjá Faxaflóahöfnum á næstunni þegar hin nýja farþegamiðstöð Vör á Skarfabakka verður tekin í notkun. Unnið er að því að leggja lokahönd á allan búnað miðstöðvarinnar. Stefnt er að því að fyrsta skipið sem afgreitt verður í Vör sé franska skipið Le Commandant Charcot, sem væntanlegt er að Skarfabakka 4. maí. Það skip getur tekið 250 farþega, sem þykir hæfilegur fjöldi til að „prufukeyra“ nýju miðstöðina. Fáðu aðgang að þessari grein Með áskrift færðu fullan aðgang að öllum læstum greinum Árvakurs — vandað, fjölbreytt og traust efni, hvar og hvenær sem er. Þannig styður þú íslenska fjölmiðlun og hjálpar okkur að halda áfram að segja sögurnar sem skipta máli. Tryggðu þér aðgang núna. Skoða áskriftarleiðir Innskráning Gleymt lykilorð? Kennitala: Lykilorð: Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu . Fáðu þér áskrift til að lesa áfram Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift. Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is. Kynntu þér áskriftarleiðirnar Ég er nú þegar áskrifandi Ég er ekki með notendaaðgang Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Blogga um frétt Nánar um málið í Morgunblaðinu Áskrifendur: Lesa blaðið hér Nýjast á mbl.is » Valur - Keflavík, staðan er 20:25 Tindastóll - ÍR, staðan er 52:48 Stjarnan með yfirhöndina Þrír fá 136.000 krónur Vertíð farþegaskipa hefst í næstu viku Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Kærir golfklúbbinn til dómstóls GSÍ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Andlát: Elva Dagmar Simundsson Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Nýjast á mbl.is » Valur - Keflavík, staðan er 20:25 Tindastóll - ÍR, staðan er 52:48 Stjarnan með yfirhöndina Þrír fá 136.000 krónur Vertíð farþegaskipa hefst í næstu viku Umræðan Menntun er stærsta atvinnumálið Ég mun alltaf æla'ðí Meira í Umræðunni » Fleira áhugavert Áður grunuð og rannsökuð vegna umsáturseineltis „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Mæla gegn því að skólahald hefjist í haust Styrkir samtökin um 25 milljónir Mest lesið Í gær Í vikunni Nýtt útspil Samfylkingar Myndskeið: Icelandair í lágflugi yfir Vestmannaeyjum Andlát: Elva Dagmar Simundsson Icelandair gaf ekki leyfi fyrir lágfluginu Aðgerðunum fálega tekið Segja Stebba Jak fara með rangfærslur Búrhval rak á land: „Stórkostleg sjón“ Fluttur á bráðamóttöku eftir fall í Ölfusá Ungur faðir vann sjö milljónir Tónleikar í ágóðaskyni ekki í anda laganna Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi Lækkun á dælu og vöktun á verðlagningu Leitað að vinningshöfum: Vannst þú milljón? Nýhætt að vinna og vann 88 milljónir Sjö fá 19 milljónir Í fyrsta lagi: Á Ísland erindi inn í ESB? Óvæntur ríkisstjórnarfundur boðaður 15,9 milljarða króna samningur „Ég er bara staddur í einhvers konar farsa“ Handtekin eftir falska dánartilkynningu í Morgunblaðinu Fylgstu með lægðinni ganga yfir Fresta hátíð vegna andláts Björgvins Óljóst af hverju vélin fór af stað í óveðrinu Ragnari Frey sagt upp störfum á Landspítalanum Gefa út viðvörun vegna veðurs og eldgosahættu Leigja út heimili á ríflega milljón Tveir fengu 88 milljónir Viðvaranir orðnar appelsínugular víða Svala: „Elsku pabbi minn, sorgin er svo mikil og þung“ Blekkingum beitt: Sölvi er sprelllifandi

Share this article