Drífa Snædal, talskona Stígamóta og fyrrverandi forseti ASÍ, var kjörin í stjórn Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE), næst stærsta lífeyrissjóðs landsins, á aðalfundi sjóðsins. Hún var tilnefnd af VR til stjórnarsetu til ársins 2030. Stjórn sjóðsins er skipuð átta mönnum. Fjórir eru tilnefndir af VR, þrír af af Samtökum atvinnulífsins og einn af Félagi atvinnurekenda. Á aðalfundi LIVE urðu tvær breytingar á stjórn lífeyrisjsóðsins. Drífa og Arnar Guðmundsson, viðskiptastjóri erlendra fjárfestinga hjá Íslandsstofu, tóku sæti í stjórn fyrir Bjarna Þór Sigurðsson og Helgu Ingólfsdóttur. Í stjórn LIVE sitja nú: Jón Ólafur Halldórsson stjórnarformaður, tilnefndur af SA Stefán Sveinbjörnsson, varaformaður, tilnefndur af VR Arnar Guðmundsson, tilnefndur af VR Drífa Snædal, tilnefnd af VR, Guðmunda Ólafsdóttir, tilnefnd af VR, Guðrún Ragna Garðarsdóttir, tilnefnd af FA, Páll Ásgrímsson, tilnefndur af SA, Sigrún Helgadóttir, tilnefnd af SA Eignir LIVE námu 1.566 milljörðum króna í árslok 2025. Lífeyrissjóðurinn er með um 37 þúsund virka sjóðfélaga. Sjá einnig LIVE skilaði 3,2% raunávöxtun