Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Greiddu 118 milljarða til sjóðfélaga á árinu

Read Full Article →

Hrein eign Lífeyrissjóðs starfsmanna ríkisins var rétt tæpir 1.664 milljarðar í árslok 2025, sem er aukning um rúma 97 milljarða milli ára. Nafnávöxtun LSR var 6,6% á árinu 2025 og hrein raunávöxtun var 2,7%. Þetta kemur fram í tilkynningu frá LSR en þar segir jafnframt að raunávöxtun sjóðsins hafi verið að meðaltali 3,8% síðustu tíu árin. „Á síðasta ári voru hreinar tekjur sjóðsins af fjárfestingum tæpar 104 milljarðar króna og er það í sjötta skiptið á síðustu tíu árum sem árlegar fjárfestingartekjur eru meira en 100 milljarðar. Á þessu 10 ára tímabili hefur hrein eign LSR aukist um 1.081 milljarð króna og af þeirri aukningu voru fjárfestingartekjur um 922 milljarðar króna, um 85% aukningarinnar,“ segir í tilkynningu. LSR greiddi á árinu sjóðfélögum nær 118 milljarða króna í lífeyri til rúmlega 27.000 sjóðfélaga að meðaltali og fjölgaði lífeyrisþegum um ríflega 1.100. Að meðaltali greiddu nær 32.200 sjóðfélagar til sjóðsins, sem er fjölgun um u.þ.b. 200 milli ára. Sjá einnig Líf­eyris­sjóðirnir aftur mættir á kaup­hliðina Í ársreikningi LSR segir að hrein raunávöxtun A-deildar, megindeildar sjóðsins, hafi verið 2,4% og reyndist tryggingafræðileg staða hennar jákvæð um 0,8% í árslok. Hrein raunávöxtun B-deildar var 4,7% og hjá séreign var hrein raunávöxtun Leiðar I 2,5%, Leiðar II 3,4%, 1,7% hjá Leið III og 2,3% í tilgreindri séreign. Hlutfall verðbréfaeigna í erlendum gjaldmiðlum hefur jafnframt farið vaxandi undanfarin ár og var það tæp 48% í árslok. Styrking krónu á móti Bandaríkjadal dró verulega úr annars ágætri ávöxtun erlendra verðbréfaeigna á árinu, í krónum talið. Ávöxtun innlendra verðbréfa, hlutabréfa og skuldabréfa, var einnig með ágætum og yfir þeim viðmiðum sem sjóðurinn gerir til fjárfestinga sinna. Eignasafn sjóðsins í árslok skiptist þannig að eign í skuldabréfum var 663 milljarðar kr., eign í hlutabréfum og hlutdeildarskírteinum var 945 milljarðar kr. og innlán námu 56 milljörðum kr.

Share this article