Hrein nafnávöxtun sameignardeildar Lífeyrissjóðs verzlunarmanna (LIVE) var 7,0% á árinu 2025 eða sem samsvarar 3,2% raunávöxtun. Til samanburðar nemur 10 ára raunávöxtun 4,0%. Ávöxtunarleiðir í séreign skiluðu frá 6,9% til 8,3% nafnávöxtun í fyrra. Eignir LIVE jukust um 108 milljarða króna milli ára og námu 1.566 milljörðum í árslok 2025. Þar af er ávöxtun eignasafna 103 milljarðar. Áframhaldandi vöxtur var í lífeyrisgreiðslum milli ára og greiddi sjóðurinn rúma 45 milljarða í lífeyri til tæplega 29 þúsund sjóðfélaga sem er 5 milljörðum meira en árið áður. Iðgjöld til sjóðsins héldu einnig áfram að aukast og námu tæpum 52 milljörðum króna. „Fjárfestingarumhverfið var almennt hagstætt árið 2025 sem endurspeglast í góðri ávöxtun allra eignasafna. Innanlands skiluðu bæði skuldabréf og hlutabréf góðri ávöxtun. Safn sjóðsins í innlendum hlutabréfum skilaði umtalsvert betri ávöxtun en viðmiðunarvísitalan sem sýnir meðalávöxtun skráðra hlutabréfa á markaði,“ segir í tilkynningu LIVE. „Ávöxtun erlendrar hlutabréfaeignar sjóðsins í íslenskum krónum var einnig með ágætum, þó að töluverðar sveiflur hafi verið á mörkuðum innan ársins. Erlend hlutabréfa- og skuldabréfasöfn sjóðsins skiluðu góðri ávöxtun í sínum gjaldmiðlum, en lækkun bandaríkjadollars gagnvart íslenskri krónu leiddi til lægri ávöxtunar í íslenskum krónum.“ Árleg nafnávöxtun séreignaleiða 2025 5 ára Ævileið III 8,3% 5,0% Ævileið II 8,0% 5,9% Ævileið I 8,1% 7,2% Verðbréfaleið 6,9% 8,1% Tryggingafræðilega staða neikvæð um 5,4% Tryggingafræðileg staða var -5,4% í lok árs 2025 samanborið við -4,3% árið áður. Lífeyrissjóðurinn segir að ávöxtun eignasafna hafi haft jákvæð áhrif á tryggingafræðilega stöðu á meðan verðbólga hafði neikvæð áhrif þar sem áunnin réttindi sjóðfélaga séu verðtryggð. Einnig hafði endurmat á örorku- og endurhæfingarlíkum lítillega áhrif til lækkunar tryggingafræðilegrar stöðu. „Þrátt fyrir neikvæða tryggingafræðilega stöðu hefur hún ekki áhrif á greiddan lífeyri og er vel innan þeirra marka sem lög gera ráð fyrir.“