- What: Sports competition results
- Impact: No security relevance
Skyttan Jón Þór Sigurðsson bætti eigið Íslandsmet í 50m liggjandi riffilskotfimi á Opna innanhússmótinu í Árósum í Danmörku í dag. Hann skoraði 629,8 stig og var með 47 X-tíur sem eru skot í allra innsta hring. Jón Þór með riffilinn í ÁrósumSkotíþróttasamband Íslands Er trommari í Diktu, flugmaður, Evrópumeistari í skotfimi og HM verðlaunahafi Jón Þór hefur orðið Evrópumeistari af 300 metra færi og fengið brons í sömu grein. Keppt er af 50 metra færi á Ólympíuleikum en reyndar bara í þriggja stöðu flokki; þar þurfa skyttur að skjóta liggjandi, krjúpandi og standandi