Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Met­fjórðungur en vesen á skulda­bréfa­miðlun

Read Full Article →

Gold­man Sachs skilaði sínum sterkasta árs­fjórðungi í fimm ár á fyrstu þremur mánuðum ársins, þrátt fyrir að tekjur af skulda­bréfa-, gjald­eyris- og hrávörumiðlun hafi valdið von­brigðum. Það var einkum met­sterk af­koma hluta­bréfa­við­skipta sem lyfti niður­stöðunni. Hagnaður bankans nam 5,6 milljörðum dala á árs­fjórðungnum, sem samsvarar 685 milljörðum króna á gengi dagsins, og jókst um 19% frá sama tíma­bili í fyrra. Niður­staðan var jafn­framt betri en grein­endur höfðu reiknað með, en væntingar þeirra höfðu hljóðað upp á 5,3 milljarða dala. Tekjur af hluta­bréfa­miðlun námu 5,3 milljörðum dala, sem er 27% aukning frá fyrra ári og yfir spám markaðarins. Financial Times segir að miklar sveiflur á mörkuðum, sem rekja megi til alþjóðapólitískra áfalla og aukinnar óvissu í alþjóðamálum, hafi skapað Gold­man hagstætt rekstrar­um­hverfi á þessu sviði. Veikari þróun var hins vegar í skulda­bréfa-, gjald­eyris- og hrávöru­við­skiptum. Tekjur þeirrar starf­semi drógust saman um 10% og námu 4 milljörðum dala, þrátt fyrir að grein­endur hefðu gert ráð fyrir 10% vexti. Bankinn skýrði sam­dráttinn einkum með veru­lega lægri tekjum af vaxta­tengdum af­urðum og húsnæðis­tengdum verðbréfum, þótt við­skipti með hrávörur og gjald­miðla hafi mildað höggið að hluta. Þrátt fyrir þetta reyndist um þriðja besta við­skiptaárs­fjórðung í sögu við­skipta­hluta Gold­man að ræða. Fjár­festingar­banka­starf­semin sótti einnig í sig veðrið. Þóknana­tekjur af fjár­festingar­banka­starf­semi jukust um tæp 50% milli ára og námu 2,8 milljörðum dala, meðal annars vegna fjölda samninga sem áður höfðu verið kynntir en gengu frá á fjórðungnum. Bankinn tók þó fram að vís­bendingar um framtíðar­tekjur af slíkum verk­efnum hefðu dalað lítil­lega frá met­háu stigi fyrir þremur mánuðum. Tekjur eignastýringar jukust sömu­leiðis um 10% og námu 4,1 milljarði dala. Sú starf­semi hefur verið lykilþáttur í þeirri við­leitni bankans að draga úr sveiflunæmi af­komunnar og minnka vægi þeirra rekstrarþátta sem ráðast mest af um­svifum á mörkuðum og fjár­festingar­banka­við­skiptum. David Solomon, for­stjóri Gold­man Sachs, sagði í uppgjörinu að alþjóð­legt stjórn­mála­um­hverfi væri áfram „mjög flókið“. Sú óvissa kom þó ekki í veg fyrir að bankinn næði sínum besta fjórðungi í hálfan ára­tug. Þrátt fyrir sterka af­komu lækkuðu hluta­bréf Gold­man Sachs um 3,8% í við­skiptum fyrir opnun markaða.

Share this article