Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Mbl Innlent

Þjónusta milljónir manna í Kína

Read Full Article →

Innlent | Sunnudagsblað | 13.4.2026 | 23:00 Þjónusta milljónir manna í Kína Skrifstofa Arctic Green Energy í Peking er í Fortune Financial Center-turninum (FFC) hægra megin á myndinni sem er tekin úr nálægum turni. mbl.is/Baldur Baldur Arnarson [email protected] Setja bókamerki Samstarf Íslendinga og Kínverja sér milljónum Kínverja fyrir hitun og kælingu. Slíkt samstarf Íslendinga við aðra þjóð í orkumálum er án fordæma í sögu Íslands. Þegar Morgunblaðið fylgdi Höllu Tómasdóttur í opinberri heimsókn hennar til Kína í október síðastliðnum gafst tækifæri til að kynna sér þetta samstarf sem fer fram undir merkjum Sinopec Green Energy. Fyrirtækið var stofnað fyrir rúmum 19 árum. Vöxturinn hefur verið ævintýralegur og sér fyrirtækið nú yfir 700 þúsund heimilum fyrir hita í Kína og þjónustar um þrjár milljónir viðskiptavina. Starfsemin dregur úr losun koltvísýrings um sem svarar 6 milljónum tonna árlega en til samanburðar var heildarlosun Íslands árið 2024 um 4,78 milljónir tonna, ef landnotkun er undanskilin (uos.is). Fyrirtækið hefur um 600 starfsmenn í fullu starfi og um 1.400 starfsmenn í hlutastarfi á upphitunartímabilinu, sem hefst venjulega um miðjan nóvember og stendur til miðs mars. Sinopec Green Energy er í meirihlutaeigu stórfyrirtækisins Sinopec (53,8%) en Arctic Green Energy á 46,2% hlut. Auk innviða sinna á Sinopec Green Energy yfir 230 einkaleyfi á sviði jarðhita og eru mörg þeirra, að sögn fulltrúa Arctic Green, meðal þeirra verðmætustu í greininni. Þetta hugvit knýr útrás Sinopec Green Energy á alþjóðlega markaði, þar á meðal til Sádi-Arabíu, Indónesíu og Ungverjalands. Með stöðugum vexti hefur Sinopec Green Energy orðið stærsta fyrirtæki heims á sviði hitaveitu og kælingar með jarðvarma en það starfar í 70 borgum í Kína og hyggur á aukin umsvif víða um heim. Xin Charlotte Zhao varð alþjóðlegur forstjóri Arctic Green Energy síðasta sumar. Ljósmynd/Arctic Green Energy Sýnishorn af möguleikum Sinopec Green Energy er umsvifamesta jarðhitafyrirtæki heims í hitun og kælingu með jarðvarma en það er með ríflega 1.100 djúpborholur og getur hitað og kælt 120 milljónir fermetra, sem jafngildir 4,6 gígavattstundum. Það hyggst auka umsvifin mikið og hefur fyrirtækið tryggt sér verkefni sem ná til ríflega 350 milljóna fermetra. Með því er vísað til gólfflatar þess rýmis sem er hitað upp eða kælt niður með jarðhita. Í stuttu máli sér Sinopec Green Energy aðallega um miðlæga upphitun með lághita jarðvarma, þar sem jarðvarminn þjónar sem grunnorka. Við jarðvarmann er bætt öðrum endurnýjanlegum orkugjöfum til að skila hita og rafmagni. Nýlega heimsótti Morgunblaðið starfsstöðvar Sinopec Green Energy í Xiong'an. Svæðið nefnist á ensku Xiong'an New Area, en það sameinar Xiong-sýslu, Rongcheng-sýslu og Anxin-sýslu. Þangað á að flytja starfsemi frá Peking sem ekki tengist stjórnsýslunni, og þannig létta á höfuðborginni, en uppbyggingunni er ætlað að sýna fram á möguleika jarðhita í Kína. 100 kílómetra frá Peking Xiong'an New Area í Hebei-héraði er um 100 km suðvestur af Peking og er auðvelt að ferðast þangað með háhraðalest. Héraðið er hannað til að vera dæmi um sjálfbæra borgarþróun. Við komuna á lestarstöðina kom fram að hún er hituð með jarðvarma frá Sinopec Green Energy sem gaf tóninn fyrir umfang starfseminnar. Leiðin lá næst í jarðhitaveitu, sem er neðanjarðar og fellur vel inn í borgarlandslagið, en hún safnar heitu vatni úr mörgum borholum á svæðinu og dreifir hita til nærsamfélagsins – bæði til fyrirtækja og íbúðahverfa. Jarðhitavökvinn fer í gegnum varmaskipta, hitar grunnvatn sem síðan er dreift til upphitunar áður en jarðhitavökvanum er dælt aftur niður í jarðhitageyminn. Það á mikinn þátt í uppbyggingunni í Xiong'an New Area að miðstjórnin í Peking hyggst flytja þangað starfsemi frá höfuðborginni sem er ótengd stjórnkerfinu. Markmiðið er að draga úr þrengslum í Peking en ríkisstjórnin hyggst meðal annars flytja nokkur ríkisfyrirtæki og háskóla á svæðið. Jarðhitahituð lestarstöðin sem við komum til er dæmi um nýja samgönguinnviði á svæðinu, en á næsta ári verður ný jarðlestarlína tekin í notkun og það er þegar komin hraðbrautartenging. Jarðhitaveita Sinopec Green Energy í Xiong'an New Area. Ljósmyndir/Arctic Green Energy Lærðu af Íslendingum Wang Hao, borsérfræðingur hjá Sinopec Green Energy, ræddi við Morgunblaðið með aðstoð túlks en hann var beðinn um að lýsa starfseminni. „Þetta er sameiginlegt verkefni Sinopec Green Energy og Xiong'an Smart Energy Company sem er ætlað að sýna fram á kosti jarðhitans. Við notum nýtingarréttindi á svæðinu til að skila hreinni orku um 10 km langa leiðslu en við lærðum af Íslendingum hvernig á að veita hita á fjarlægt svæði. Jarðvarminn sem er fluttur hingað fer í gegnum varmaskipta og hitar um fjórar milljónir fermetra. Við köllum þetta sýniverkefni vegna þess að Xiong'an Smart Energy Company reiddi sig áður á gaskatla og hefðbundna hitagjafa. Með jarðhitatækni okkar höfum við smám saman hætt notkun gaskatla en á þessu svæði voru áður notaðar um þrjár milljónir rúmmetra af jarðgasi til upphitunar. Með því að skipta því út fyrir hreinan jarðvarma hefur verkefnið hlotið mikla viðurkenningu frá yfirvöldum á staðnum. Þegar við náum fullri afkastagetu er áætlað að árstekjur verði 120 milljónir renminbi (2,2 milljarðar króna) og á grunni þessa árangurs ætlum við að nota sama líkan okkar á 10 milljóna fermetra svæði innan Xiong'an New Area,“ sagði Wang. Hófst á áttunda áratugnum Hann útskýrði svo að forrannsóknir á jarðeðlisfræði svæðisins hafi hafist á áttunda áratugnum þegar stjórnvöld leituðu að olíu og gasi. Benti svo á að misgengi væru sterk vísbending um jarðhitaauðlindir. „Við höfum tryggt okkur flestar hágæða jarðhitaauðlindir og vinnsluréttindi í Xiong'an New Area. Margar byggingar á þessum svæðum eru atvinnuhúsnæði. Þannig að fyrir utan framúrskarandi auðlindir höfum við sterkan markað. Nú býr rúm milljón manna í Xiong'an, en í framtíðinni verður búið að flytja marga spítala, skóla og fyrirtæki frá Peking á þetta svæði. Með allri þessari uppbyggingu mun íbúum smátt og smátt fjölga í 5 milljónir fyrir árið 2050.“ Hvernig myndir þú lýsa efnahagslegum ávinningi þessarar jarðhitatækni? „Tæknin okkar er mjög hagkvæm enda höfum við framúrskarandi auðlindir – kjörhitastig fyrir hitaveitur og sterkan markað á vaxtarsvæði, sem ásamt háþróaðri tækni skapa traust viðskiptalíkan.“ Haukur Harðarson, stofnandi og stjórnarformaður Arctic Green, bætir þá við: „Við erum auðvitað að keppa beint við hefðbundnar hitunaraðferðir sem sækja orku í jarðefnaeldsneyti en erum í auknum mæli að standa okkur betur, bæði hvað varðar verðstöðugleika og umhverfisáhrif.“ Stjórnstöð Sinopec Green Energy á Xiong'an New Area-svæðinu. Hægt að endurnýja holurnar Hversu lengi munu þessir innviðir endast? „Jarðhitaholurnar ættu að endast í um 50 ár,“ segir Wang. Haukur bætir við: „Eftir 50 ár verður hægt að hreinsa og endurnýja holurnar, sem gerir sjálfbæra nýtingu mögulega fyrir komandi kynslóðir. Með réttu viðhaldi mun jarðhiti endast á meðan kjarni jarðar er heitur.“ Er merkjanlegur munur á loftgæðum milli borga í Kína sem nota jarðhitaveitu og þeirra sem nota jarðefnaeldsneyti? „Já, svo sannarlega,“ segir Wang. „Loftgæði í borgum sem nota jarðhita eru mun meiri og þar er himinninn heiðari og færri dagar með mengunarþoku. Breytingin er skýr og marktæk.“ Hvað finnst heimamönnum um þessa tækni? „Þeir styðja hana eindregið. Áður fyrr brenndu íbúar kolum eða jarðgasi til að hita húsin sín yfir veturinn, sem olli mengun og miklum kostnaði. Nú er upphitun ódýrari og loftið og vatnið eru hreinni. Fólk kann mjög vel að meta þessa tækni.“ Mun eftirspurn eftir hreinni orku í Kína aukast eftir því sem íbúar venjast hreinna umhverfi? „Já, að sjálfsögðu,“ segir Wang. „Hið svokallaða 30/60 markmið stjórnvalda – að ná hámarki kolefnislosunar fyrir 2030 og kolefnishlutleysi fyrir 2060 – mun flýta fyrir þessari þróun. Hlutur jarðefnaeldsneytis í orkusamsetningunni fer minnkandi, þannig að eftirspurn eftir hreinni orku mun óhjákvæmilega aukast,“ segir Wang. Verkefnastjórinn Cui Baozhu er því næst spurður hvað hann sé starfandi í marga mánuði á ári, í ljósi þess að hitunartímabilið er hér um bil um 5 mánuðir. „Þrátt fyrir að hitunartímabilið sé aðeins fimm mánuðir vinn ég allt árið. Utan hitunartímabilsins sinnum við viðhaldi og sækjum inn á nýja markaði til að halda áfram að vaxa,“ segir Cui. Hópurinn fór því næst til Rencaijiayuan (Xincheng Community) jarðhitaveitustöðvarinnar. Við íbúðakjarna Stöðin er neðanjarðar í stórum íbúðakjarna og fellur vel inn í borgarlandslagið. Í heimsókninni var okkur boðið inn á heimili hjóna sem sögðu jarðhitaveituna hafa reynst þeim vel. Hitinn er leiddur inn í íbúðabygginguna þeirra með gólflögnum og því sjást engir ofnar innandyra. Ferðinni lauk með heimsókn í höfuðstöðvar Sinopec Green Energy í Xiong'an. Stöðin reyndist vera mjög tæknilega fullkomin. Starfsmenn geta fylgst með fjölmörgum stöðvum í rauntíma og notað gervigreindarstýrð vélmenni til að hafa umsjón með afköstum kerfisins en það lágmarkar slysahættu og hámarkar rekstrarhagkvæmni. Chen Menghui, stjórnandi hjá Sinopec Green Energy. Forseti Íslands boðinn velkominn Tveimur dögum eftir heimsóknina til Xiong'an buðu Arctic Green Energy og samstarfsaðilar þeirra hjá Sinopec Group Höllu Tómasdóttur, forseta Íslands, velkomna í höfuðstöðvar Arctic Green Energy í Kína en þær eru á 27. hæð skrifstofuturnsins Fortune Financial Center, sem er nálægt China Zun – hæsta skýjakljúfi Peking. Fyrr um daginn var Halla forseti heiðursgestur á alþjóðlegri ráðstefnu um jafnrétti kynjanna í Peking, þar sem hún sat við hlið Xi Jinping, forseta Kína, í ráðstefnusalnum. Það var því viðeigandi að ljúka heimsókninni til Kína með viðtali við Xin Charlotte Zhao, sem varð alþjóðlegur forstjóri Arctic Green Energy síðasta sumar, um samstarf fyrirtækisins við Sinopec Group í Kína. En áður en hún var ráðin síðasta sumar stýrði hún starfsemi Arctic Green Energy í Kína í rúmlega tíu ár og hafði umsjón með fjármálum og fjárfestingum hjá Sinopec Green Energy í 19

Share this article