Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kína bregst við olíukrísunni með vindorku

Read Full Article →

Kínverjar hafa aukið fjárfestingar í vindorku umtalsvert á sama tíma og óvissa ríkir um framboð á olíu og gasi frá Miðausturlöndum. Á vef New York Times segir að Kína hafi þrefaldað vindorkugetu sína á síðasta ári í samanburði við aðrar þjóðir í heiminum. Áhersla Kínverja á endurnýjanlega orku er knúin áfram af stefnumótandi breytingum stjórnvalda. Þjóðin er stærsti innflytjandi heims á jarðefnaeldsneyti en Kínverjar geta til dæmis ekki reitt sig eins mikið og Bandaríkin á eigin framleiðslu. Þróunin hefur þó veitt Kínverjum ákveðna forystu þegar kemur að vindorku en sex stærstu vindmylluframleiðendur heims eru nú kínverskir. Sjá einnig Kínverjar takmarka hækkun bensínverðs Stefnan stendur í skörpum andstæðum við stefnu bandarískra stjórnvalda, sem hafa nýlega aukið stuðning sinn við olíu- og gasiðnaðinn og jafnframt staðið í vegi fyrir uppbyggingu nýrra vindorkuverkefna. Vindorka krefst þó lengri uppbyggingartíma en til dæmis sólarorka og gæti ávinningurinn því tekið lengri tíma. Kínverjar virðast þó reiðubúnir að auka við langtímafjárfestingar með aukinni áherslu á vindorku bæði á landi og úti á hafi.

Share this article