Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Kínverjar takmarka hækkun bensínverðs

Read Full Article →

Kínversk stjórnvöld hafa gripið til aðgerða til að milda áhrif hækkandi olíuverðs fyrir ökumenn sem reiða sig enn á bensínbíla í landinu. Á vef New York Times segir að eldsneytisverð í Kína hafi þegar hækkað um 20% frá upphafi Íransstríðsins. Efnahags- og skipulagsnefnd Kína tilkynnti í dag að dregið yrði úr fyrirhugaðri verðhækkun á bensíni. Frá og með morgundeginum verður lítraverðið við dælu 174 krónur en upphaflega stóð til að hækka verðið upp í 189 krónur á hvern lítra. Í Kína eru eldsneytisverð endurskoðuð á tíu daga fresti í takt við þróun heimsmarkaðsverðs á olíu. Óvenjuleg hækkun orkuverðs hefur þó gert þessa annars tæknilegu verðlagningu að viðkvæmu pólitísku hitamáli. Sjá einnig Asíuríki setja þak á bensínhækkanir Ákvörðunin kom mörgum greiningaraðilum á óvart og að mati sérfræðinga endurspeglar hún áhyggjur stjórnvalda af verðbólgu og greiðslugetu heimila samhliða langvarandi efnahagslegum áskorunum. Kínverjar hafa staðið fyrir miklum orkuskiptum í landinu en raf- og tengiltvinnbílar samsvara um helmingi allra nýseldra bíla. Þrátt fyrir það eru um 300 milljónir bíla sem ganga fyrir eldsneyti og eru Kínverjar jafnframt háðir innfluttri olíu frá Miðausturlöndunum. Sérfræðingar telja einnig að langvarandi átök í Miðausturlöndum gætu haft neikvæð áhrif á neyslu í Kína og gætu jafnframt ógnað mikilvægum útflutningsmörkuðum landsins. Um helgina mynduðust raðir við bensínstöðvar víða um land eftir að ríkisfjölmiðlar greindu frá yfirvofandi verðhækkunum, þar sem ökumenn reyndu að fylla á tankinn áður en nýtt verð tæki gildi.

Share this article