Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Sprungur farnar að myndast í kínverska hagkerfinu

Read Full Article →

Hækkandi verð á olíu og jarðgasi sökum stríðsins í Íran er byrjað að hafa áhrif á kínverska hagkerfið. Á vef New York Times segir að kínversk stjórnvöld hafi náð að tryggja aukaolíubirgðir en stríðið hefur þó haft áhrif á einkaneyslu og útflutningsgeirann. Bílasala í Kína dróst saman í mars og apríl og hafa veitingastaðir og hótel séð mun færri viðskiptavini. Þúsundir starfsmanna við leikfangaverksmiðju í suðurhluta Kína mótmæltu einnig eftir að fyrirtækið varð gjaldþrota vegna hækkandi plastverðs og tolla. Kínverjar hafa undanfarnar vikur náð að standa af sér áhrif stríðsins en nú eru níu vikur liðnar frá upphafi átaka og eru sprungur í hagkerfinu farnar að myndast. Sjá einnig Kínverjar sætta sig við hægari hagvöxt Alicia García-Herrero, aðalhagfræðingur Natixis í Asíu, segir að hagkerfið sé að hægja á sér og bætir við að það gæti reynst Kínverjum erfitt að ná 4,5% hagvaxtarmarkmiðinu sem stjórnvöld settu nýlega fram. Eitt skýrasta merki um veikleika innan hagkerfisins er bílasala og framleiðsla en bílar eru næststærsta fjárfesting kínverskra heimila á eftir fasteignum. Smásala á bílum dróst saman um 26% fyrstu 19 daga aprílmánaðar miðað við sama tíma í fyrra. Hluti samdráttarins skýrist að hluta til af minni sölu rafbíla eftir að skattaívilnanir stjórnvalda runnu út í desember. Sala bensínbíla dróst þó enn meira saman, eða um tæp 40%.

Share this article