Security News

Cybersecurity news aggregator

📰
INFO News Viðskiptablaðið

Fluttu út fleiri raf­bíla en bensín­bíla í fyrsta sinn

Read Full Article →

Kínverskir bílaframleiðendur fluttu í fyrsta sinn út fleiri rafbíla og tengiltvinnbíla en hefðbundna bensín- og dísilbíla í nýliðnum apríl. Þetta kemur fram á vef WSJ en þar er vitnað í tölur frá kínversku bílasamtökunum CPCA. Alls fluttu Kínverjar út 769.000 bifreiðar í mánuðinum og af þeim voru 52,7% rafbílar eða tengiltvinnbílar. Útflutningur slíkra bifreiða tvöfaldaðist einnig milli ára og nam 406 þúsund eintökum í apríl. Innlend sala á fólksbílum í Kína dróst hins vegar saman um 21,5% milli ára í apríl og nam 1,38 milljónum bíla. Bílasala í apríl var einnig 16% minni í Kína en hún var í marsmánuði en samtökin segja að hækkandi olíuverð hafi dregið enn frekar úr eftirspurn eftir bensínbílum. Sjá einnig Flagg­skip kín­verskra raf­bíla hægir á sér Kínversku bílasamtökin segja að útflutningur verði lykilþáttur þegar kemur að vexti kínverskra bílaframleiðenda næstu misseri en fyrirtækin hafa glímt við minnkandi eftirspurn. CPCA telur einnig að stærstu framleiðendur muni áfram leggja áherslu á vöxt í Evrópu og Suður-Ameríku til að vega upp á móti minnkandi eftirspurn í Miðausturlöndum.

Share this article